Hnefi eða vitstola orð II

.
Hnefi eða vitstola orð er langljóð í vinnslu. Þessi örtextaútgáfa var gerð fyrir Tíu þúsund tregawött, ljótleikatölublað í ritstjórn Kára Páls Óskarssonar. .
Smellið á myndina til að sjá ljóðið.
Hnefi eða vitstola orð I
.
Hnefi eða vitstola orð er langljóð í vinnslu. Þessi myndbandsútgáfa var gerð fyrir Litlu ljóðahátíðina á Akureyri.
Smellið á myndina til að sjá ljóðið.
Höpöhöpö Böks
.
.
Höpöhöpö Böks er einhljóða lípógram skrifað fyrir Christian Bök. Myndljóðið var frumsýnt í sjónvarpsþættinum Kiljunni á RÚV 14. janúar, 2009. Upplesturinn er af disknum sem fylgir Ú á fasismann – og fleiri ljóð.
Smellið á myndina til að sjá ljóðið.
.
.
Riddari niðurrifsins
Riddari niðurrifsins er fundið (og flutt) ljóð sem fannst í grein Ragnars Halldórssonar, Svar til riddara niðurrifsins, í Fréttablaðinu 11. desember, 2008. Grein Ragnars var svar við fyrri grein Hallgríms Helgasonar um kreppuástandið á Íslandi, og þótti Ragnari Hallgrímur helst til harður í garð stjórnvalda.
Smellið á myndina til að sjá ljóðið.
.
Kreppusonnettan
Jón Sigurðsson, sjálfstæðishetja Íslendinga, flytur Kreppusonnettuna eftir Eirík Örn Norðdahl, íklæddur bleikum kjól femínismans. Ljóðið var samið í upphafi kreppunnar haustið 2008, þegar umræður um IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) voru nýhafnar.
Smellið á myndina til að sjá ljóðið.
.
.
.
Iceland Report on the Observance of Standards and Codes
.
.
Ljóðið Iceland Report on the Observance of Standards and Codes var gert fyrir fyrsta tölublað Tíu þúsund tregawatta. Upplesturinn er af disknum sem fylgir með Ú á fasismann. Smellið hér til að sjá.
.
.
Hemd stafakarlanna
.
Ljóðið Hemd stafakarlanna var gert fyrir seríuna Publishing the unpublishable, á UbuWeb, og pantað af Kenneth Goldsmith. Ljóðið er 250CM X 250CM og er hugmyndin sú að gera úr því plakat (ef ekki kemur fram góðviljaður milljónamæringur sem langar að fjármagna rándýra og risastóra bók). Smellið á ljóðið til að sjá það í fullri stærð.
.
Hér er hægt að skoða hin ljóðin í seríunni.
Föður vorra
.
.
Þrjú föðurvor – smellið á myndina til að sjá ljóðin.
.
.
.
Kennara með köldu blóði
.
.
Kennara með köldu blóði – hreyfiljóð unnið í Flash.
.
.
.
Diskó
.
.
.
.
Ljóðið Diskó var samið fyrir net síðla árs 2007.
.
.
.
.
Ónefnt myndljóð
.
.
Ónefnt ljóð úr ljóðabókinni Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum. Tekið skal fram að ljóðinu er ekki beint gegn einum eða neinum, og er ekki ætlað sem neikvæð athugasemd við þau listaverk og listamenn sem fram koma í verkinu.
.
Sakkarínarbakkar
.
.
.
Sakkarínarbakkar eru úr Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum. Smellið á ljóðið.
.
.
.
J-I-H-A-D
.
.
.
.
.
J-I-H-A-D er úr Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum. Smellið á ljóðið.









