Hversdagsleiðin

Íbúð til leigu á Ísafirði (látið vini ykkar vita!)

05/08/2011 13:45

3-4 herbergja risíbúð í fallegu timburhúsinu á Ísafirði (Öldunni) til leigu frá og með núna. Leigan er 75 þúsund með hita og rafmagni (eða 65 þúsund án hita og rafmagns). Íbúðin er búin öllum húsgögnum og búsáhöldum, þar er sjónvarp; dvd-spilari, þvottavél, baðkar og sturta – og svo allt hitt (stólar og sófi, hnífar og gafflar o.s.frv.). Tvö svefnherbergi, eitt stærra með hjónarúmi og eitt minna með svefnsófa – auk eins ferðarúms sem má taka fram og svo getur barn sofið á sófanum. Útsýni yfir bæinn, fjöllin og pollinn á aðra hönd en Snæfjallaströndina á hina. Sjávargjálfur í morgunsárið. Upplýsingar: kolbrunarskald@gmail.com.

Ítarlegri lýsing (en kannski eilítið úrelt, en í grófum dráttum er þetta eins) hér.

Myndir (teknar 2007 en í aðalatriðum er þetta nú samt eins):