Kurrar í kólibrífugli » Ljóð

Teemu Manninen
Að verða töframaður; eða, óður til Aleister Crowley, fjallamanns frá Bretlandseyjum

I

Bara þó einhver segi eitthvað um sem þið eruð ekki sammála gerir það hann ekki að hálfvita. Mögulega býr hann yfir reynslu sem þið búið ekki yfir og kannski er sýn hans af því taginu sem mjög er mikilvæg og giska oft er horft framhjá. Af þessum sökum er afskaplega erfitt að vera viss um hver sé og hver sé ekki skíthæll sem skortir raunverulegt innihald. Af þessum sökum brennum vér ekki brýr að baki okkur á leið vorri um framabraut töframannsins, þó hugsast megi að við komum þar fyrir litlum skiltum sem á stendur: „Hefur óljósa þýðingu.“

II

Að totta brjóst húsbónda vorra er kannski mikilvægt á ákveðnum stigum í þroska vorum, en þó er oss loks nauðsyn að brjótast úr hreiðrinu og reyna eigin vængi, oss er skylt að taka áhættur og verða sjálfir þró fyrir reynslu og visku. Hafi það enga aðra þýðingu, geta slík þrekvirki þó kannski kennt oss auðmýkt.

III

Til eru tilfinningasamar nálganir og hugvitsamar, þurrleg mál og andleg, slík sem byggja ekki á mikilli reynslu og slík sem byggja á engu öðru, slík sem kjósa töfra sína í hægindastólum, slík sem kjósa þá í Helvíti, í Himnaríki, í Geimnum, í Moldinni, sum í tengslum við samtök, sum við hefðir og sum lengst út á skrýtnaskeri í hverveithvarsýslu.

IV

4 6 3 8 A B K 2 4 A L G M O R 3 Y X 24 89 R P S T O V A L. Hvað merkir þetta, ó, spámaður? Ef þið vitið það eigi, KANNIÐ ÞÁ NÁNAR! Komist að því hvað bragðast vel. Koma englar og kanínur og ljós þér bara til? Hvað um Innrásir Geimvera úr Hryllilegustu Djúpum Himingeimsins? Undarleg orð og furðulegur útreikningur? Að synda einfaldlega í svölum tjörnum á haustin? Stundum er árangursríkasta leiðin til að ná markmiðum sínum ekki sú að sætta sig við það fyrsta sem dettur í fangið á manni. Gerið hluti. Prófið að gera hluti og umfram allt, LEYFIÐ YKKUR AÐ MISTAKAST HRAPALEGA. Mistök eru jafn mikilvæg og velgengni. Þetta tvennt er hvort sem er bara afurð þess að hugsa á röngunni. Sókrates sagði það ekki þess virði að lifa ókönnuðu lífi. Brunið á buxnarassinum. Takið áhættur. Gerið það bara, fjandakornið!

Teemu Manninen

Birtist fyrst í Tíu þúsund tregawöttum – ljótleika.

Teemu Manninen
Í tilefni lesturs Ljóðsins eftir Auden og Andsvars Randall Jarrell, sem lenti fyrir bíl 14. október, 1965

Kráka situr á

gálganum í

hálsmáli Golgötu

á málverkinu

eftir öldunginn

Pieter Bruegel.

Þessi til-og-frá

ferðalög

mannkyns eru

eitthvað

í bakgrunni

þess sem

gerist, eins og

portrett af

greifa hvers nafnbót

féll í skaut

föðurbróður

en forgrunnurinn

er gagntekinn

af dimmum

feldi með silfur

sylgju. Ég veit

ekki hvort

gömlu meistararnir

þekktu þjáninguna.

Þeir þekktu kenningar

ljóssins, rúmfræði

lábragðs,

hverju sjóndapurt augað

varpar á

strigann, ef ekki

þjáningu?

Það liggur

handan við rökræður

okkar. Við

vitum þetta

eitt: múldýr

böðulsins

klórar sér í gumpinn

á berkinum meðan

fallöxin rís

á torginu.

Lengra aftur

má sjá

börn á skautum.

Á tungu

listarinnar

bragð

myndast,

sífellt

fágaðri mynd

af tilfallandi

smáatriði á

skarlatsrauðu

höfuðfati

erindrekans,

stækkuð

hauskúpa sem

ekki er hægt

að lesa í.

„Munið

mig,“ rymur

hún, en

börnin

halda áfram

að skauta, eins og

dálitlar

líksmurðar

linsubaunir sem

þorna á striga

grafhýsi

magans

grafin í

kistu

múmíu faraósins

og

þú verður

að ákveða þig strax

hvort brandarinn sé

fyndinn.

Teemu Manninen

Birtist fyrst í Tíu þúsund tregawöttum – ljótleika.

Kurt Schwitters
Anna Blume

Ó þú, sem elskuð ert af mínum 27 skilningarvitum, ég elska þér!

Þú þína þig þér, ég þér, þú mér, – - – – Við?

Þetta á annars (í framhjáhlaupi) ekki að vera hér.

Hver ert þú, ótalda kvenpersóna? Þú ert, ert þú?

Fólkið sagði að þú værir.

Leyfum því segja, það veit ekkert hvað kirkjuklukkan slær.

Þú berð hattinn á fótum þér og gengur á höndum,

á höndunum gengur þú.

Halló, þín rauðu klæði, söguð í hvítar fellingar,

rauða elska ég Önnu Blume, rauða elska ég þér.

Þú þína þig þér, ég þér, þú mér – - – -  Við?

Þetta á annars (í framhjáhlaupi) að vera í kaldri glóðinni.

Rauða Blume, rauða Anna Blume, hvað segir fólkið?

………………………Verðspurning:

……………………… 1.) …..Anna Blume á fugl.

……………………….2.)  …..Anna Blume er rauð.

……………………… 3.)  …..Hvernig er fuglinn á litinn?

Blár er litur þíns gula hárs.

Rautt er kurrið í þínum græna fugli.

Þú látlausa stúlka í hversdagsklæðum,

þú elskulega græna dýr, ég elska þér!

Þú þína þig þér, ég þér, þú mér – - – - við!

Þetta á annars (í framhjáhlaupi) að vera í – - – glóðkistunni.

Anna Blume! Anna, A – - – - N – - – - N – - – - A!

Ég slefa nafni þínu.

Nafn þitt drýpur eins og mýksta nautgripatólg.

Veistu það, Anna, veistu það nú þegar?

Maður getur einnig lesið þig aftanfrá.

Og þú, yndislegust allra,

þú ert eins að framan og að aftan:

A – - – - N – - – - N – - – - A.

Tólgin rennur GÆLANDI yfir bak mér.

Anna Blume,

slefdýrið þitt,

ég – - – - elska – - – - þér!

Kurt Schwitters

Oscar Rossi
4 ljóð úr Bréf til lögreglunnar

Kæri herra lögreglumeistari

Ég sný mér til yðar þar sem undirsátar yðar hafa í mínum skilningi ítrekað farið illa með mig. Ég vísa til runu atburða sem að mínu mati voru í hæsta máta undarlegir og óskemmtilegir og mun ég reyna að segja frá þeim svo nákvæmlega og hlutlaust sem mér er frekast unnt svo að réttlætinu megi verða fullnægt.

Þetta byrjaði allt saman fyrir nokkru síðan þegar ég gekk inn á aðalskrifstofu lögreglunnar með það að augnamiði að gefa mig fram við lögregluyfirvöld, þ.e.a.s yður. Nánar tiltekið var þetta fimmtudaginn þann 9. Ég verð að viðurkenna að þetta gekk ekki alveg eins og ég hafði ætlað, yður að segja, þar eð ég mætti örlítið of seint.

atvinnuviðtal

………………………………….skemmtilegt að vera

loksins tekinn alvarlega!

………………………………………………. mér skilst þetta

samtal sé tekið upp

…………………….. en hvað er með þennan lampa

Ég skil. Það er auðvitað margt sem ég á eftir að læra áður en við getum virkilega byrjað af alvöru. Engar áhyggjur! Ég get beðið míns tíma.  sem er beint í andlit mér?

ég kem nú til með að laga þetta,

……..……..……..……..ég læt mig

……..……..……..……..……..ekki undir þrýstingi

……..……..……..engin prófraun er of erfið. fyrir þetta hef ég

……..……..æft mig lengi

……..……..……..……..……..sá sem sýður sig harðar

……..……..……..brestur.

……..……..……..……..……..ég skal

standa mína pligt

kæri herra lögreglumeistari!

þegar ég var barn stóð mamma einu sinni með mig hátt yfir höfði sér æpandi á útbreiddar hendur og hún vaknaði rétt áður en hún heyrði skallann á mér skella í steingólfið.

Oscar Rossi

Gertrude Stein
Ef ég segði honum

Frágengið portrett af Picasso

….Ef ég segði honum kynni hann við það. Kynni hann við það ef ég segði honum.

….Kynni hann við það kynni Napóleón kynni Napóleón kynni kynni hann við það.

….Ef Napóleón ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum ef Napóleón ef Napóleón ef ég segði honum. Ef ég segði honum kynni hann við það kynni hann við það ef ég segði honum.

….Núna.

….Ekki núna.

….Og núna.

….Núna.

….Nákvæmlega eins og kóngar.

….Fyndist fullt um það.

….Nákvæmleiki eins og kóngar.

….Svo til að sárbæna þig sem fullt sem um það.

….Nákvæmlega eða sem kóngar.

….Lokur lokast og opnast líkt og drottningar. Lokast lokur og lokur og svo lokast lokur og lokur og svo og svo og lokur og svo lokast lokur og svo lokast lokur og lokur og svo. Og svo lokast lokur og svo og líka. Og líka og svo og svo og líka.

….Nákvæm líkindi við nákvæm líkindi nákvæmra líkinda jafn nákvæm og líkindi, nákvæmlega jafnt og líkjast, líkjast nákvæmlega, nákvæmlega í líkindum nákvæm líkindi, nákvæmlega og líkindi. Því það er svo. Af því að.

….Endurtakið nú að öllu rösklega, endurtakið nú að öllu rösklega, endurtakið nú að öllu rösklega.

….Hafið haldið og heyrið, endurtakið að öllu rösklega.

….Ég dæmi dæmi.

….Sem líkindi við hann.

….Hver kom fyrst. Napóleón fyrsti.

….Hverjir koma of komandi komandi of, hverjir fara þar, sem þeir fara þeir deila, hverjir deila öllu, allt er sem allt sem hingað til eða hingað til.

….Nú á stundu nú á stundu. Nú og nú og stund og stund.

….Hver kom fyrst Napóleón í fyrstu. Hver kom fyrst Napóleón fyrsti. Hver kom fyrst, Napóleón fyrst.

….Eins og stendur.

….Nákvæmlega gera þeir gera.

….Fyrst nákvæmlega.

….Nákvæmlega gera þeir gera líka.

….Fyrst nákvæmlega.

….Og fyrst nákvæmlega.

….Nákvæmlega gera þeir gera.

….Og fyrst nákvæmlega og nákvæmlega.

….Og gera þeir gera.

….Í fyrstu nákvæmlega og fyrst nákvæmlega og gera þeir gera.

….Hið fyrsta nákvæmlega.

….Í fyrstu nákvæmlega.

….Fyrst sem nákvæmlega.

….Sem fyrst sem nákvæmlega.

….Eins og stendur.

….Sem eins og stendur.

….Líkt sem eins og stendur.

….Hann hann hann hann og hann og hann og og hann og hann og hann og og sem og sem hann og sem hann og hann. Hann er og sem hann er, og sem hann er og hann er, hann er og sem hann og hann og sem hann er og hann og hann og og hann og hann.

….Geta krullur rænt geta krullur haft eftir, sem hafandi er eftir.

….Sem eins og stendur.

….Sem nákvæmleiki.

….Sem lestir.

….Á lestir.

….Á lestir.

….Sem stendur.

….Samsvörun.

….Sem stendur.

….Sem samsvörun sem eins og stendur.

….Faðir og farðu.

….Var kóngur eða herbergi.

….Farðu og hvort.

….Var þar var þar var þar hvað var þar var þar hvað var þar þar var þar.

….Hvort og þar inni.

….Sem jafnvel segi svo.

….Einn.

….Ég lendi.

….Tveir.

….Ég lendi.

….Þrír.

….Landið.

….Þrír

….Landið.

….Þrír.

….Landið.

….Tveir

….Ég lendi.

….Tveir

….Ég lendi.

….Einn

….Ég lendi.

….Tveir

….Ég lendi.

….Sem eitt svo.

….Þeir kunna ekki.

….Nóta.

….Þeir kunna ekki

….Fljóta.

….Þeir kunna ekki.

….Þeir njóta.

….Þeir kunna ekki.

….Þeir sem móta.

….Kraftaverk leika.

….Leika þokkalega.

….Leika þokkalega í lyndi.

….Í lindum.

….Aukindum.

….Eins og eða eins og sem stendur.

….Leyfið mér þylja hvað sagan kennir. Sagan kennir.

Gertrude Stein

Mette Moestrup
Ást og stærðfræði

……………………………………..tileinkað Evu / Nam Sook

Ég drakk jasmínte janúarmorgun árið 2004.

Ég var ringluð og 34 vetra.

Mér fannst ég tala í tölum.

Rödd innra með mér reyndi að muna u.þ.b. 500 ára

gamalt, kóreskt ástarljóð eftir Hwang Chin-I (1506-1544),

en önnur reyndi að skilja § 1,1

í Lögum um breytingar á útlendingalögum frá 27. desember, 2003.

Önnur röddin spurði: Hvað hefur Hwang Chin-I með § 1,1

að gera? Munurinn er mikill, sagði hin

eins og á ást og stærðfræði. Hm, sagði önnur

og hvíslaði Ég deildi í langa janúarnótt með tveimur

og lagði annan helminginn undir teppið. En hin

hringdi í aðlögunarráðuneytið í síma 33923380

og starfsmaður þar, við skulum kalla hana Alice Mortensen, sagði að § 1,1

væri „tilslökun“ á tengslakröfunni fyrir alla eldri en 28 ára

með ríkisborgararétt frá fæðingu (og í Danmörku fæddist ég árið 1969).

Teppið er rósótt og lyktar eins og vorgola, en hvernig er næsta vers?

hvíslaði önnur röddin. En hvers vegna er 6 ára aldurstakmark

fyrir börn sem ættleidd eru frá útlöndum í § 1,1? spurði hin

Alice Mortensen, sem sagði, að lögin legðu að jöfnu ætleidd börn á aldrinum 0-6 ára

og fólk með danskan ríkisborgararétt frá fæðingu (t.d. frá 1969)

hvað varðaði dvalarleyfi og sameiningu maka. Eitthvað um helming,

hinn elskaða og teppið … og þegar hann kemur brýt ég fram helminginn

tommu fyrir tommu til að framlengja nóttina, hvíslaði önnur, og hin

kvaddi Alice Mortensen kurteislega og las kafla í viðauka 21:

…….. því yngra sem hið erlenda kjörbarn er við komuna til Danmerkur

…….. þeim mun minni tengsl og minningar um upprunalandið

…….. mun barnið hafa, í grundvallaratriðum.

Jahá! Það er kannski vegna þessa sem börn sem ættleidd eru eldri en 6 ára

falla ekki undir „tilslökunina“ um tengslakröfuna frá 28. ári,

heldur fyrst, hafi ég skilið rétt, frá því 34.

28 + 6 = 34!

- þetta er fáránlegur útreikningur! hrópaði hin

og önnur hvíslaði þetta nærri því 500 ára

gamla ljóð eftir Hwang Chin-I (1506-1544)

Ég deildi

í langa janúarnótt með tveimur

og lagði annan helminginn undir teppið,

rósótt og lyktar af vorgolu.

Og þegar hann kemur brýt ég fram helminginn,

tommu fyrir tommu, til að framlengja nóttina.

Sjáðu, þetta er einföld stærðfræði, stundi hin,

engdi sig og æpti: „Nei, en fáránlegt! Hwang Chin-I var 38

þegar hún dó, þannig að … hefði hún verið ættleidd 6 ára

og ástfanginn af ódönskum, t.d. kóreskum manni, þá styttist vornóttin sbr. § 1,1

niður í … fokking 4 ár!

Sjj. Hvað hefur Hwang Chin-I með § 1,1

að gera? sagði önnur.

Æi, ekki neitt, andvarpaði hin, en það er eitthvað rangt við § 1,1.

Að ættleiða er að velja, og barnið velur ekki hvort það er 0 eða 7.

Hvíslaðu því ekki um lyktina af rósóttu teppi. Æptu nei við aldurstakmarkinu! NÚNA!

En ég vil heldur hvísla um jasmínu og love, hvíslaði önnur,

og hin æpti: love stafast eins og love á dönsku, og § 1,1

er bara dulin love-lov! (og þá sló klukkan 12)

Með öðrum orðum lög um ástina, hélt hin áfram, eins og 24 ára-

reglan, og önnur hvíslaði 3

sinnum: Sjj, sjj, sjj, meðan klukkurnar glumdu 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 = 24

Átti þetta að vera útkoman?

Nei.

Þetta gekk ekki upp.

Afsakið, ég var ringluð af

love.

Og jasmínteið var orðið beiskt og kalt,

eins og ég sagði sjálfri mér að ég skyldi aldrei verða.

Það var ekki of seint, það er aldrei of seint

að fara í fallegan kjól og

skella sér í partí á miðnætti.

Mette Moestrup

Anne Boyer
Ástir hinna glaðlyndu verkamanna

Í upphafi hefjum við leikinn

með Woody og hugsjónakossi hans.

Ég get ekki lagt frá mér Síberíu

en get ekki sleppt að sleppa af henni hendinni.

Varir hans voru hugleiðingar öreiganna

í maí, orrusta sýklanna,

þessi venjubundni ótti við nýbökuð brúðhjón,

umbóta- eða byltingarsinnuð. Bjargað

frá drukknun, settist ég klofvega

á Woody á bolsévíska rúmdýnuna

og biðlaði eins og suðupottur í ágúst.

Þegar þeim tókst ekki að sameinast í baráttunni

lauk hjónabandinu, einn Trotskí og mús.

Í landi hinna glaðlyndu verkamanna

lifðu skáldin fyrir uppskeru íssins.

Glytti í spörva, kanínu, hundaköll

ráku staðbundið sólarlagið til átaka

og pólitískt skjögrið spretti úr spori

undir kveðnum skýrslum um skort.

Maður þyrfti sérstakan poka undir þetta

og gríðarlegar næturvenjur.

Ég er hætt að svífa yfir vatnið. Hafandi

helgað sig stéttabaráttunni, býður Woody uppá

roðarunnamauk í kvöldmat og lítið annað.

„Saffron ást“ hljómar eins og poppsmellur

í landi hinnar kemísku alsælu.

Óforskammaðar eins og iðjuhöldur,

þessar lygar úr verksmiðjunni.

En hvernig hljómaði listin?

Kraftmikil, myndi ég segja, með gerðarsögnum

og fjarlægum hömlum handverksins.

Bjóddu stuðla á silfurfati,

berðu fram tvær sítrónur, eina bullukollu.

Neðantunguleyndarmálið var í senn

málfræðilegt og með öllu óskiljanlegt.

Enginn stal trúvillunni.

Við áttum ekkert eins og vinnu.

Í allri Síberíu.

Í fáguðu hvarfi alls sem ég elskaði.

Ég man eftir hamri Woodys, par avian.

Hann kallaði það síðdegistilraunir.

Einu sinni í viku flaug ávarp hans inn

í herbergi mitt. Ég játa ekkert.

Allir bassaleikara Tsarsins, allir menn Tsarsins:

Týrólar taka sér rokklög frá Vín í munn.

Þessa dagana áróðar Woody mig undir lökunum:

Við erum aldrei betri en verkamennirnir!

Það eru engir verkamenn eftir, svaraði ég,

en sigð hans þrýstir harkalega að hné mér.

Brúðusöngflokkur Deus ex Machina

flaug inn í Leníngrad rétt eftir hádegi.

Ég beið meðal Tartara og leiddist

eins og tunglunum. Woody lét sjá sig, lyktaði

af granateplum, gúlag-snæðandi rúblum

og hálfeyddri rúllu af köngulóarvef.

Ég babúskaði undir anda hans,

100 morgna eins og tákn væru verkamenn,

ljóð ísblokkir. Félagar mínir segja að

sleppi maður máltíðum komi hinir dauðu.

Ég myndi fæða hann á því sem hann vildi:

lævísum framleiðsluháttum, stjörnum.

Rauðir risar vangadansa, eldur í eld,

brennir upp allt. Þetta hjónaband

er orðrómur sem við eitt sinn heyrðum.

Hetjur fólksins suða, eins og söngtifur.

Kremlin varanna. Kyrillískur sérhljóði.

Samhljómur verkamanna. Söngurinn gæti lekið

út þegar þögnin er ráð við hljómburði,

en hvernig sleppum við fótgangandi frá starfi vængjanna?

Árið núll merkti ég dagatal mitt dr. Sívagó.

Ég syng um ást, rúllettukeppni!

Morguninn sem Woody fór í útlegð, svaf ég

vikum saman. Hann sakaði mig um að skreyta

með málsháttum: Glaðlyndir verkamenn heita að

hindra með öllum ráðum hamingju sína.

Anne Boyer

HD (Hilda Doolittle)
Ráðgáturnar

Endurreisnarkór

Dökkir

dagar að baki

og dekkri dagar nálgast;

dökkir hérna megin,

dökkir hinum megin

ógna andanum

eins og safn hýsla

hrein

handfylli

þrídæmdra spjótbera;

óvinur hérna megin,

óvinur hluti

hæðar

og fjallakambs

og undirhæðar;

áður ekkert um ráðgátu,

ekkert liðið,

bara tómleikinn,

gryfja dauðans,

ótti,

flóðið,

jarðskjálftinn,

stormasöm veiki;

síðan rödd innúr öngþveitinu,

þessi haldlitli andardráttur

sem segir eins og eitt blóm getur

um liðinn vetur

(sem myrða

með Pyþískum boga

pláguna frá Delfí;)

eitt blóm,

haldlítil rödd,

afhjúpar

alla helgi

með

„friður

hljóðna þú.“

II

Veldissproti

og blómskaft

og spjót,

eitt blóm getur myrt veturinn,

nú þessi sjaldséði

dávaldur

og galdramaður

og erkimynd;

eitt blóm getur fellt veturinn

og hitt dauðann,

nú þessi

fer og snýr aftur

og deyr

og kemur til að blessa

aftur,

aftur;

veldissproti og blóm

og nálægur

verndari

hinna týndu og getulausu;

jú,

ég er týnd,

sjá hver stjarnanna er nærri;

jú,

ég er máttlítil,

sjá

hver álögð brynja

klæðir geiglausan huga

sem afklæðist búnaði

visnar hugsunar;

sjá vitið hér

hvílík óræðni,

hvílík fyndni

og hvílík birta;

sjá,

mér er lokið,

án elskhuga og innileg engum,

rödd innan sótthitans,

þessi haldlitli andardráttur

gefur ranga hugmynd

um ótta vorn

og vonleysi vort,

„sjá,

ég er hér.“

III

„Ekki til að ónýta

nei, til að helga

blómið

sem reisir

Adonis

frá dauðum;

sjá,

sjá

liljurnar

hvernig þær vaxa,

sjá hversu fagrar,

sjá hversu tær rauður,

(þannig lést ástin)

sjá liljurnar

blæddi

fyrir ást;

hvorki keisari né alvaldur,

enginn getur gert tilkall

til slíkra dásemda;

kóngur getur aldrei stært sig

af svo fallegri flík

sem herskarar

engja

og fjallaliljur.“

IV

„Ekki til að ónýta,

nei, til að helga

hvern loga

sem rís

við brá Ástar;

ekki til að ónýta

heldur særa fram aftur

og nefna

uppánýtt hvert blóm,

snák

og bý

og fugl;

sjá,

sjá

blettóttan snákinn

hve vitur;

sjá dúfuna

spörvann,

enginn deyr

án föður þíns;

maður reisir gildruna

og býður örvunum að fljúga,

maður snarar móðurfugl

sem flýgur yfir

skjálfandi ungana,

skilur þá eftir

sveltandi;

enginn maður,

enginn maður,

enginn maður

má nokkru sinni óttast

að þessi sem blakar

vængjum í yndislofti,

verði fangaður af ránfugli,

að þessi verði sleginn

í sínum villiskógi,

að þessi drepist brotinn

í villiskógarsnöru,

mér

og föður mínum

stendur á sama.“

V

„Ekki til að ónýta,

nei, til að helga

af kappi

allar fornar ráðgátur;

sjá hina dauðu týnda,

grasið liggur

niðurtrampað

og blettótt

og vatnsósa;

sjá,

sjá,

sjá

grasið fyrirlítur

lækinn

úr snjó og eðju og regni;

grasið,

grasið

rís

með blómhnapp;

kornið

lyftir ljósu spjótshöfði sínu

upp að sólinni aftur;

sjá,

sjá

hinir dauðu

eru ekki lengur dauðir,

og kornið er gull,

blað,

stilkur

og fræið þar inni;

ráðgáturnar

eru í grasinu

og regninu.“

VI

„Enn eru ráðgátur,

ég held sömu

hringrás sæðingar

og sólar og regns;

Demetra í grasinu

ég fjölga,

endurnýja og blessa

Jakkos í vínviðnum;

ég held lögin,

ég tryggi sannleika ráðgátna,

fyrst þeirra

að nefna lifendur dauða;

ég er rauðvín og hleifar brauða.

……..Ég tryggi lögin,

……..ég held um sannleika ráðgátna,

……..ég er vínviðurinn,

……..greinarnar, þú

……..og þú.“

HD (Hilda Doolittle)

Susana Gardner
ASTER ASTERIAS

RAUNSÆI TAPAÐI NAFNI …. HENNAR …. : …. MARIE …. (  Ó) HÚN

….…. HÚN SPÁSSERAR     Í KLST

NÖFN ….MARI . / H/ANN/ÚN ..  SEGIR .. HÉR/NA .. &HENNAR   &HÚN  KLST

….…. SÁ(LI)R ER ASTER SKAÐAR VONSKUR

FRÁSEGIR . (  Ó) ER SKAÐI . VONSKUR LÁTA LOS . ( Ó) . SÆSKELJASNYRTING

….…. E Ð A,- SÓLIN Í LARAMIE

MINNI .. ATLAS . HERRA,- . EINNAR . KLST . ASTRAL . ASTROL . ASTROL

….…. E(Ð)A MÚSUR

HATTUR HENNAR KLST INN & SVO,- STÓRHERTOGAFRÚ SKJÁTLAST

….…. SNIÐGENGIÐ MANNFALL HÁRLOS S/TILLUR

EÐA,- EINNAR  ÖMMU  MÁNASIGÐ  HENNAR  ÚR  SALTI  Í  SEAGRAMS

….…. R  O  F  I

TRILLUR   ÞEGAR .  TEGRAMM . SENT . NÚLLVEGIS . SVEI,- . LÁTUM OSS

….…. S  Ó L A OSS

SJÁ . NÚ . LOKS . NEMA  …. STELLINA     ÞAÐ     SÉ       SÓLIN       EINSOG

….…. H Ö F I N

EINSOG ATTIS SITUR NÚLL EINSOG HÖFIN TÖTRANET &SVO SPÁSSERA

….…. EINSOG ALLT ÍSUND (SÓL

ÁR / ÁN SETT LOKS Í FERÐ  ( Ó),- ASTER NETIN OKKUR LÆTUR OKKUR

….…. SEIN SAMÞ(R)YKKIR OKKUR

( Ó) EINSOG ALLT AÞENAR OKKUR MITT AÐL O K U M ENDIST  L(N)ÆTUR

….…. VEI HREI Ð RAR OKKUR.

Susana Gardner

Lars Skinnebach
Úr Á morgun eru kerfin aftur til

Á morgun eru kerfin aftur til. Sveitarfélögin

Reglubundinn svefn lífgar á uppá

Ónæmisvarnirnar ganga fylktu liði í dag. Ah, ég er svo hraustur

Það er huggun. Léttir. Það er ennþá nótt

í litlu heilunum, þeir reykja hass í húsunum, í íbúðunum

óendanlegur vetur. Eða óendanlegt sumar. Eða hvíla sig

í rauðum blóðskrokkum. Elskan mín, heyrirðu í þeim dreyma

um betra líf? Það er þögn í höllinni. Hann er svo

Stinnur rassinn þinn, svo fastur í sér, haltu eftir

við ríðum og við riðum. Hann smeygði sér fram til að sjá

löggjafarsamkunduna, vítisljósið. Ég á heiminn

ég er enginn. Heyrirðu hvort partíið hélt áfram?

Smekkurinn er hið andlega grundvallareinkenni

Mér er bara alveg sama um sannleika. Aspargata, Aspargata

Hér kemur sjálfsævisaga mín … Mikið er fínt

að minnast, það er æðislegt á bragðið

Það er yfirvegaður andardráttur minn sem fær heiminn til að hljóða.

Lars Skinnebach

Þýtt úr sænskri þýðingu Henriks Petersen.