Útvarp
Manifestó fyrir nýjan áratug í bókmenntum
Nýr áratugur er í augsýn: annar áratugur nýrrar aldar. Síðastliðin tíu ár hafa þrjár meiriháttar breytingar átt sér stað á sænskum prósa: Frásagnarmáti raunsæisins hefur tekið sér bólfestu í glæpasögum og gellubókmenntum. Mörkin á milli skáldskapar og sjálfsævisögu hafa þurrkast út. Hin hreina og tæra frásagnarlist hefur verið sett til hliðar, bæði af höfundum... »
Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum
Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »
Ukon – Seiður og hélog
Innslag mitt í Seið og hélog um sænska skáldið Ulf Karl Olov Nilsson. »
Sampo
Kæru hlustendur. Íslensk „athafnaskáld“ keyptu á dögunum ríflega 15% hlut í finnska stórfyrirtækinu Sampo. Þetta þykir Finnum dulítið óþægilegt, og það hefur ekki bara að gera með þær 1.353 milljónir evra sem fyrirtækið græddi á síðasta ári – og mér telst til að geri 400 þúsund krónur á hvern Íslending – heldur eru sárindin... »