Ísland, þú bauðst mér ekki í afmælið þitt heldur bara vinsælu krökkunum í bekknum svo tókstu það til baka en það verður sérborð fyrir alla sem eiga fyrir því skilst mér en ég er samt sár mér finnst þetta samt ósanngjarnt og þú ættir ekki að eyða svona miklum tíma í að mála á þér »
Uppá líf og dauða
I Sigur viljans eftir Leni Riefenstahl er bara heimildamynd. Móðirin eftir Maxim Gorki er bara skáldsaga einsog Atlas Shrugged eftir Ayn Rand og Réttarhöldin eftir Kafka. Bíómyndin Jud Süss fjallar fyrst og fremst um mikilvægi þess að vera uppruna sínum trúr, að hlú að sínum nánustu – og þótt aðalsöguhetjan sé lævís og undirförull peningapúki »
Fréttabréf: Eitur fyrir byrjendur á sænsku og fleira
Kæru vinir! Þetta er helst í fréttum: Númer eitt: Í næstu viku verð ég í Basel í Sviss að kynna Eitur fyrir byrjendur, ásamt Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Halldóri Guðmundssyni. Húllumhæið fer fram í Literaturhaus Basel, Barfüssergasse 3, klukkan 20.00 næstkomandi miðvikudag. Ég reikna með að sjá ykkur öll þar (nei, djók). Númer tvö: Samningar »
Ekki meira helvítis drasl. Ekki meira helvítis drasl
Vinsælustu fréttirnar á Vísi eru rusl. Vinsælasta tónlistin í útvarpinu er drasl. Vinsælustu bækurnar á metsölulistunum eru ýmist kits eða kjaftæði. Vinsælasta fólkið á Íslandi leggur sig fram um að haga sér einsog hálfvitar – sumt af vinsælasta fólkinu á Íslandi er harðsvíraðir ofbeldismenn, annað er athyglissjúkir sakleysingjar. Vinsælustu vefirnir á Íslandi eru holræsi og »
Hneykslan, fliss og upphrópanir!
Samtíminn er brillíant spíttbátur og við lifum á stórveldistíma sjónvarpsins. Þar gerast hlutirnir, hefur einhver sagt, ég veit þó ekki hvað það er sem á að gerast, en þegar nær dregur jólum bjóða vinsælir dægurmálaþættir upp á bókagagnrýni. Fagnaðarefni, sönnun þess að við séum bókamenntaþjóð? Gott ef satt væri, en eitt er þó víst; sjónvarpið »
Náriðlakróníka
Einar Ben hefði orðið heimsfrægur, ef hann hefði skrifað á ensku, sagði Matti Jo víst í útvarpsviðtali á dögunum. Kiljan hefur göngu sína aftur í næstu viku – jólabókaflóðið hefur verið kvatt og við taka fastir liðir einsog venjulega. Byrjað verður á hinum klassíska kirkjugarðsrúnti með hinu jafn klassíska kirkjugarðsrúnki. Í þar síðasta Tímariti Máls »
0,34% íslamófasista ætla að stela reiðhjólinu þínu
I Í síðustu viku sprengdi enn einn músliminn sig í tætlur í Evrópu. Í miðborg Stokkhólms. Ég les blöðin, ég er upplýstur, lít stundum í kóraninn á netinu og heimasíðu Al-Kaída og hlustið nú, því þetta er staðan: Íslamófasískir hryðjuverkamenn hafa hreiðrað um sig í Evrópu – eða Evrabíu, einsog við köllum hana nú. Þeir »
Fáein orð um „fáránlegar“ nauðgunarkærur
Julian Assange er kærður fyrir nauðgun í Svíþjóð. Hann er annars vegar sakaður um að hafa tekið af sér smokk í miðjum klíðum – án leyfis – og beitt líkamsþyngd sinni til þess að halda áfram kynmökunum þegar mótspilarinn tók samþykki sitt fyrir kynlífinu til baka; og hins vegar fyrir að hafa haft mök við »
Vikulöng tilraun til raðmorðs að yfirlögðu ráði (samantekt)
Textinn hér að neðan var skrifaður á rúmri viku – á meðan ég var að lesa skáldsöguna Hreinsun eftir Sofi Oksanen. i: Þjóðerni og fórnarlömb í Hreinsun Oksanen (fordómar) Ég er á milli skáldsagna – var að ljúka við Samjatín og ætla næst í Oksanen – en er líka að klára The Political Novel – »
Mitt botnlausa vonleysi
Ég kaus ekki til stjórnlagaþings. Ég er ekki stoltur af sjálfum mér. Ég ætlaði að kjósa, lengst af – ég kynnti mér frambjóðendur, tók sjálfspróf, debateraði kosti og galla við vini og kunningja – en þegar til kastanna kom gat ég ekki lagt á mig þá litlu aukafyrirhöfn sem það hefði kostað mig að kjósa. »
Um ofbeldi þess að binda stjörnur í lög
I Meðal þeirra spurninga sem Pétur og Páll hafa viljað setja í öndvegi fyrir komandi stjórnlagaþing er hvort að binda eigi íslensku í stjórnarskrá sem þjóðtungu. Flestir hafa held ég svaraði þessari spurningu játandi – og er það sjálfsagt til marks um hin nýju þjóðlegu gildi sem við ætlum að halda í heiðri; nú eru »
Finnskt verðlaunaþunglyndi
I Eitt dægilegasta sport menningariðnaðarins eru verðlaunaveitingar. Ekki er nóg með að ekki sé nokkurn skapaðan hlut að marka jafnvel virtustu verðlaun – sem missa ítrekað af því sem „mestu skiptir“ menningarheiminn (þegar fram í sækir) og verðlauna fyrst og fremst alls konar dægurflugur – heldur veita þau okkur smásmugulegum sparðatínendum allt að því lífsfyllingu. »
Að gera Ísland einfaldara
Um Ljóðveldið Ísland, eftir Sindra Freysson og Gengismun eftir Jón Örn Loðmfjörð. I Í upphafi ljóðaannálsins Ljóðveldið Ísland vitnar Sindri Freysson í aðgerðaáætlun viðskiptaráðs 2006-2015. Eitt markmiðið er: „eggjast á eitt að gera Ísland einfaldara.“ Annars vegar er þetta göfugt markmið, og líklega það sem Sindri hefur ætlað sér með bók sinni: að útskýra »
Eitt og eitt finnlandssænskt snappsjott af handahófi
Í Finnlandi er heill stjórnmálaflokkur sem á sér í raun bara eitt höfuðmarkmið: að vernda sænskuna í finnsku samfélagi. Þetta er Sænski alþýðuflokkurinn í Finnlandi (Svenska folkpartiet i Finland) og hann fær jafnan um 5% atkvæða – sem er ansi gott ef litið er til þess að sænskumælandi Finnar (sem eru væntanlega helstu fylgismenn flokksins) »
Mannasiðir Sofi Oksanen
I Ég hef tvisvar sinnum „hitt“ Sofi Oksanen. Í fyrra skiptið fór ég ásamt finnskum kunningja mínum, rithöfundinum Tuomas Kyrö, á knæpu í Helsinki þar sem fyrir var kraðak af skáldum við hringborð. Ég vissi ekki hver hún var en þótti hún heldur óþokkaleg, því hún sneri samræðunni alltaf yfir á finnsku – og þegar »
Listarleysi bæjarstjórnar
Hálf ostsneið Í Ísafjarðarbæ bjuggu 3.899 manns um síðastliðin áramót. Til þess að geta haldið úti bæjarlistamanni þarf 350 þúsund krónur og til þess að fá 350 þúsund krónur í kassann þarf hver og einn þessara 3.899 íbúa að leggja fram tæplega níutíu krónur, eða sem nemur einsog um fimmtungi úr oststykki. Það gerir tæplega »
Alle Menschen sind Ausländer – Fast überall
Þegar þýski kanslarinn Angela Merkel lýsir fjölmenninguna dauða talar hún í tælandi gátum. Annars vegar vísar hún í pólitíska stefnu – að Þjóðverjum hafi fullkomlega mistekist að búa ásættanlega um innflytjendur í Þýskalandi – og hins vegar daðrar hún við þau öfl í Þýskalandi sem kæra sig engan veginn um neina innflytjendur og vilja helst »
Bónbjargir bannaðar – með lögum
Í Finnlandi er ekki mikið um betlara – ekki samanborið við til dæmis Skotland eða Frakkland. Finnar eru óvanir betlurum. Þeir hreykja sér af því að hafa þraukað kreppuna á tíunda áratugnum á samanbitinni þögninni. Maður drakk, maður vældi jafnvel, sumir hengdu sig eða hentu sér út í næsta stöðuvatn, aðrir slógust og stungu hver »