Fréttir

Varð að bregðast við innrás veruleikans – viðtal í Bæjarins besta

Varð að bregðast við innrás veruleikans – viðtal í Bæjarins besta

Eiríkur Örn Norðdahl hefur sent frá sér sína þriðju skáldsögu, Gæsku. Bókin hefur fengið góðar viðtökur og frábæra dóma. Henni voru gefnar fjórar stjörnur bæði í Morgunblaðinu og á Pressan.is og gagnrýnendurnir báðir sammála um að hér sé sennilega á ferðinni besta skáldsagan um hrunið. Auk þess lofa þau Eirík Örn í hástert fyrir... »

Gat ekki haldið í sér lengur – Viðtal í DV

Gat ekki haldið í sér lengur – Viðtal í DV

Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flutti til Finnlands fyrir þremur árum og ætlar að búa í Svíþjóð næstu tvö ár með sænskri eiginkonu sinni og nýfæddum syni þeirra. Á meðan eiginkonan stundar nám í Svíþjóð ætlar Eiríkur að halda áfram að „harka“. Skrifa, þýða og reyna að krækja sér í einhverjar evrur með því að... »

Þrúgandi nærvera – moggaviðtal

Þrúgandi nærvera – moggaviðtal

ÞAÐ hefur verið ríkuleg uppskera af hrunsbókum fyrir þessi jól og þá af öllum stærðum og gerðum. Í því safni sker sig nokkuð úr skáldsagan Gæska eftir Eirík Örn Norðdahl, en hún fléttar saman ævintýri og grjótharðri pólitík svo úr verður býsna beitt ádeila á græðgisamfélagið sem við lifum og hrærumst í. Smellið á myndina... »

Viðtal á Miðjunni

Viðtal á Miðjunni

Hvað langaði þig til að verða þegar þú varst lítil? Fæðingarlæknir. Nú langar mig stundum að verða iðnaðarmaður. Trésmiður. Eða reka bókabúð. Eða ritstýra bókmenntatímariti. Eða ritstýra trésmíðatímariti. Ekki það ég kunni neitt að smíða, en mér finnst það heillandi tilhugsun að kunna að smíða. Meira hér. »

„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því... »

5ta tölublað: Mbfr

5ta tölublað: Mbfr

Nýhil og Tíu þúsund tregawött kynna – samanskroppin af skömm, en tilneydd, kúguð, lömuð af ótta og í allan stað miður sín: Bókverk? Ljóð? Vefur? Moggablogg? 5. tölublað Tíu þúsund tregawatta? Readymade? Myndlist? Myndbandsljóð og ljóðamyndband? Margmiðlunargagnkvæmisaðilavettvangur? Óforskömmuð auglýsing og staðgengill fyrir lamað Morgunblað? Mbfr er allt þetta, allt annað og allt sem þú getur... »

Nýja skáldsagan mín: Gæska

Nýja skáldsagan mín: Gæska

Nú um mánaðamótin kemur út mín þriðja skáldsaga, Gæska. Mál & menning gefur út.  Á kápu segir: Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur... »

Nú skelfur jörð og skakast himnakroppar!

Nú skelfur jörð og skakast himnakroppar!

Bókstafir skríða í felur fyrir komandi fyrirsát, ljóðlistin tekur jóðsótt og fæðir nýja bók: Af steypu, fimmta vers í afbókaflokki Nýhils! Af steypu meðhöndlar sjálfa meðhöndlun tungumálsins, setur efnið í fyrirrúm og spyr sig: Hvað á þetta allt saman eiginlega að þýða? Hvað er hægt að gera með ljóðlistinni? Myndljóð, konkretljóð, endurvinnsla, hömlur, konseptljóðlist –... »

Scream-upplestur

Scream-upplestur

Toronto, Ontario, Kanada. Á mánudagskvöldið (13. júlí) las ég með Paul Dutton á Scream Festival hátíðinni úti í hlýrri en þægilegri sumarnóttinni (dagarnir hér eru ekki alveg jafn þægilegir. Við Paul vorum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og gekk bara þrælvel þrátt fyrir vesen með hljóðnema (við heyrðum ekki bofs í... »

Öskrað í hágarði – aftur til Kanada

Öskrað í hágarði – aftur til Kanada

Ég mun koma fram á The Scream Literary Festival, annað árið í röð. Hátíðin fer fram í Toronto í Kanada, dagana 2. til 13. júlí, og les ég síðasta daginn á viðburði sem nefnist Scream in High Park. Búist er við frá 750 til 1.000 manns (já, þetta eru bara ljóð). Auk mín munu... »