Pistill um jólabókaflóðið í Klassekampen

Pistill um jólabókaflóðið í Klassekampen

Ég skrifa reglulega pistla í norska dagblaðið Klassekampen – sem er nokkurn veginn jafnbesta dagblað sem ég hef lesið á ævinni. Yfirleitt skrifa ég pistlana á sænsku, fæ konuna mína til að lesa þá yfir og svo eru þeir þýddir og prentaðir á norsku í 100 þúsund eintökum (ég hef aldrei talað við jafn marga í einu og þarna). Síðast var ég eitthvað steiktur, eitthvað grillaður, eitthvað flamberaður og maríneraður, dálítið seyddur í kollinum sumsé – og konan mín stakk upp á því að ég skrifaði pistilinn bara á íslensku og hún myndi síðan þýða hann yfir á sænsku. Sem varð úr. Þess vegna birtist hérna alltíeinu og upp úr þurru norskur pistill á íslensku, sem er vanur að birtast bara á þeim hluta síðunnar sem helgaður er sænska broti míns splittraða persónuleika; og... »

Áríðandi fréttatilkynning: Einræðisherrarnir og fleiri hljóðaljóð!

Áríðandi fréttatilkynning: Einræðisherrarnir og fleiri hljóðaljóð!

Fyrir skitnar þrjár evrur (480 kr.) geturðu eignast heil 30 hljóðaljóð, samin, framin og flutt af Eiríki Erni Norðdahl. Fyrir fjórar evrur í viðbót (1.100 kr. alls) geturðu fengið sendan disk (heimabrenndan með kápumynd) og þá er sendingarkostnaður innifalinn. Hér er meðal annars um að ræða alræmda einræðisherraseríu, framúrstefnulegar naglasúpur, finnsk voðaljóð, íslensk-amerísk þjóðkvæði,... »

Sláandi bókmenntalíki

Sláandi bókmenntalíki

Í fyrra skrifaði ég töluvert á þessa síðu um skáldsöguna Hreinsun eftir Sofi Oksanen. Í kjölfar þess bað Hallgrímur Helgason mig að taka saman helstu aðfinnslur mínar við bókina fyrir tímaritið Stínu, sem ég gerði og birtist greinin einhvern tíma snemma síðasta vor. Kits, það er heimska viðtekinna hugmynda þýdd á tungumál fegurðar og... »


Eðlilegra að naga svartan kveikinn

Eðlilegra að naga svartan kveikinn

– um Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur Stundum gerist það við lestur (góðra) (ljóða) bóka (og Sigurbjörg Þrastardóttir hefur aldrei gert betur) að hugsun manns rennur saman við hugsun bókarinnar svo erfitt verður að greina hvar manni sjálfum lýkur og... »

Farið og náið í bókina og lesið hana – hvort sem þið borgið fyrir hana eða ekki

Farið og náið í bókina og lesið hana – hvort sem þið borgið fyrir hana eða ekki

Ef það er ekki ljóst af því sem ég hef þegar skrifað þá skal ég segja það hreint út: Farið og náið í bókina hans Eiríks Arnar og lesið hana – hvort sem þið borgið fyrir hana eða ekki.... »

Fréttabréf: Frankfurt! Gautaborg! IWF! OMG! og Booby!

Fréttabréf: Frankfurt! Gautaborg! IWF! OMG! og Booby!

Kæru vinir. Næstkomandi laugardag tek ég þátt í bókamessunni í Gautaborg. Þar verð ég hluti af dagskrá Zebra ljóðmyndahátíðarinnar, í svonefndu Rum för poesi, þar sem ég mun lesa ljóð og Zebra kynnir valinn hluta af dagskránni frá því... »

IWF! IWF! OMG! OMG! kemur út 10. október

IWF! IWF! OMG! OMG! kemur út 10. október

Úrval tilraunaljóða eftir Eirík Örn Norðdahl í þýðingu snillinganna Alexanders Sitzmann og Jóns Bjarna Atlasonar, með myndskreytingum eftir snillinginn Franzisku Schaum. Halló, halló, nú leggjum við Þýskaland endanlega að fótum vorum! (af tilefninu verða svo upplestrar á bókamessunni í... »

Vestfirskt rok inn í stássstofuna

Vestfirskt rok inn í stássstofuna

Eiríkur hremmir lesandann frá byrjun, mig alla vega, og allar þær 155 blaðsíður sem kverið er rígheldur hann manni við efnið, vekur upp hjá manni þanka, bryddar upp á því sem maður hafði ekki áttað sig á og skerpir... »

Áttunda borðið í skrifmaríó (er þjófnaður)

Áttunda borðið í skrifmaríó (er þjófnaður)

Eiríkur er búinn að vinna áttunda borðið í skrifmaríó og allir sveppirnir eru orðnir að hjálmsdýrum Ég mæli sumsé hiklaust með bókinni Ást er þjófnaður. Hún er frábær, boðberi nýrra tíma og stimplar Eirík inn sem framsýnan... »

Smuguviðtal

Öll sköpun er ást – hún er atlot við veröldina – og engin sköpun er sprottin af sjálfri sér, hún sprettur ekki úr tómi, heldur úr eins konar samræði og samræðu við heiminn. Ég vildi kannski vekja athygli á því... »

Ritdómurinn er þjófnaður!

Ég lagðist upp í rúm rétt fyrir miðnætti, kvöldið sem ég keypti bókina.  Þrem tímum síðar varð ég að þvinga mig til að hætta lestrinum.  Ég trúi því varla sjálfur ég hafi heillast svona af bók um höfundarétt (því... »

Plöggið er þjófnaður

Þegar maður er búinn að skrifa bók, búa hana til prentunar og senda hana út í heiminn er eftir að fá einhvern til að lesa hana. Ég man ekki hvað ég hef gefið út margar bækur sjálfur – undir... »

Perspired by Iceland kynnir: Fréttatilkynningin er þjófnaður

Perspired by Iceland kynnir: Fréttatilkynningin er þjófnaður

Allur lestur er þjófnaður. 
Öll hlustun er þjófnaður. 
Allt áhorf er þjófnaður. Útgáfufélagið og bónusklúbburinn Perspired by Iceland kynnir – í samstarfi við SLIS, Sumarbúðir listhneigðra sósíalista – sína fyrstu prentuðu afurð: Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl... »

Á meðan við bíðum dauðans

Á meðan við bíðum dauðans

– Um bækurnar Ljóð á ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson og Ég greiði mér eftir Christophe Tarkos Fororð Á dögunum sá ég stuttmyndina Líf á Facebook eftir Maxime Luère. Myndin gerist öll inni á félagsmiðlinum fræga – strákur stofnar... »

Kýlapestin og hvernig maður lifir hana af

Kýlapestin og hvernig maður lifir hana af

I Hinir sönnu Finnar voru óumdeildir sigurvegarar í þingkosningunum síðastliðin sunnudag. II Hjálp! III Fyrir þessu eru nokkrar ástæður. Fyrst og fremst má líklega þakka vel heppnaðri öðrunarherferð frambjóðenda – en „öðrun“ er sú list að láta svo líta... »

Sannastur Finna: Perus Jussi

Sannastur Finna: Perus Jussi

Mig langar að kynna ykkur fyrir manni sem kallar sig Perus Jussa. Perus Jussi er frambjóðandi fyrir rasistaflokkinn Perussuomalaiset í heimabæ mínum, Oulu í Finnlandi. Flokkur þessi er á íslensku jafnan kallaður „Hinir sönnu Finnar“ eða „Alvöru-Finnar“ og einsog... »

Af sparifatalitteratúr og öðrum bókmenntategundum

Af sparifatalitteratúr og öðrum bókmenntategundum

Við skulum leyfa okkur að skipta bókmenntum í fimm kategóríur, þvert á allar bókmenntagreinar frá ritgerðum til reyfara: Góðar, „góðar“, vondar, „vondar“ og lélegar. Við skulum leyfa okkur það vegna þess að stundum þarf maður einfaldlega að leyfa sér... »

Ógn, skelfing og ótrúlegar vinsældir

Ógn, skelfing og ótrúlegar vinsældir

Sænski alþýðuflokkurinn, hægriflokkurinn, miðjuflokkurinn og græningjar hafa hugsað sér að hækka lífeyrisaldur í 70 ár – þess vegna kýs ég Hina sönnu Finna. Sagði nafnlaus kjósandi í athugasemd við frétt í Hufvudstadsbladet á dögunum. Hinir sönnu Finnar eru popúlistaflokkurinn... »