Hugsjónadruslan
Hugsjónadruslan
Hvílíkar hetjur! Hvílík saga! Þrándur er kominn um borð í Norrænu að hitta Maggí sem er póliamorískur Texasbúi með master í mannfræði – þau kynntust á Netinu. Nema hvað, á vegi hans verður ein af perlum Norður-Atlantshafsins, hinn engilbjarti Færeyingur Anní, og hann er ekki samur á eftir. Kominn til Kaupmannahafnar á þessi mikli... »
Eruð þér Færeyingur?
Eiríkur Örn Norðdahl: Hugsjónadruslan. Mál og menning 2004. Nú var mál að standa sig. Stunda daður, gott og hollt daður. Kveikja í kvensu með brennandi augum, heilum bálkesti af augasteinum, snilldarlegum kommentum um tímana, kommentum sem gætu breytt heimsskilningi hennar um alla eilífð. “Eruði færeyskar?” spurði ég svo eins og asni. (bls. 35) Mér... »
Ístöðuleysingi læknast af berklum
Ungum skáldum er það allra best að lenda í lífsháska. Þetta benti skáld eitt mikið á fyrir margt löngu, og þótti spaklega mælt. Æ fokkit. Byrjum aftur. Þrándur er ungur maður í leit að lífi. Eftir margra mánaða sleitulaust strit, sextán tíma á dag, í smábæ úti á landi, þá leggur hann land, æ... »
Bókabloggsdómurinn
Hvað skal segja um Hugsjónadrusluna hans Eiríks? Það er alltaf dálítið pínlegt að tjá sig um verk fólks sem maður þekkir dálítið, sérstaklega ef maður ætlar sér að reyna að segja eins og er í stað þess að smjaðra bara. Þá er alla vega gott að hafa fyrir framan sig bók sem virkilega er... »
Einlæg saga af kaldhæðnum sögumanni
Maðurinn með hattinn. Þar sem jólabókaflóðið fer mestpart fram í Kastljósi, kjaftasögum og netsíðum núorðið (enda hafa fæstir nema atvinnugagnrýnendur tíma til þess að lesa nokkurn skapaðan hlut fyrr en eftir flóð) er rétt að gera fyrst grein fyrir fyrirframfordómum mínum um höfundinn, fordómum sem ég veit að ég er ekki einn um: Hellingur... »
Víman og jaðar samfélagsins
Vegaskáldsagan er alltaf einhvers konar leit höfundar að sjálfum sér. Í nýrri bók sinni Hugsjónadruslunni sendir Eiríkur Örn Norðdahl höfuðpersónu sína í slíka leit fyrir sig með Norrænu í átt til Kaupmannahafnar. Aðalpersónan, Ísfirðingurinn Þrándur, ætlar að vísu að koma við í Færeyjum en sefur yfir sig. Ferðalag hans allt er í þeim anda.... »
Fyrirheit um glæstan feril
Hugsjónadruslan er glæsileg fyrsta skáldsaga höfundar. Einhver glæsilegasta fyrsta skáldsaga höfundar sem ég hef lesið lengi. Það er kannski óviðeigandi að nefna það hér á þessum vettvangi en ég læt bara vaða. Þarna er sami krafturinn og í hinum Falska fugli Mikaels Torfasonar sem kom 1997. Sama flæðið, sama ákefðin, sama hispursleysið, sama greddan.... »