Eitur fyrir byrjendur
Eitur fyrir byrjendur kemur út í Þýskalandi
Önnur skáldsaga mín, Eitur fyrir byrjendur, sem kom út hjá Nýhil árið 2006, kemur út á þýsku á næsta ári hjá forlaginu Kozempel & Timm, sem sérhæfir sig í norrænum fagurbókmenntum. Skrifað var undir samning vegna þessa fyrr í haust. Mál & menning keypti útgáfuréttinn á bókinni fyrr í ár. Eitur fyrir byrjendur hlaut góðar... »
Eitur fyrir byrjendur
„Hegðun fólks sem hefur rétt sofið hjá í fyrsta skipti er eins misjöfn og mögulegar paranir þessara 6 milljarða sem búa á jörðinni.“ – Halldór, plöntuæta Halldór og Herdís búa saman en hafa ekki kysst svo vitað sé. Þegar Herdís færir inn á heimilið varhugaverða pottaplöntu og kynjafræðinemann Högna tapar Halldór hæfileikanum til að fara úr... »
Maður eða múmínálfur?
Í sögunni Eitur fyrir byrjendur hitta lesendur sambýlisfólkið Dísu og Halldór. Hún er heimspekinemi sem misst hefur unga dóttur í bílslysi, hann er auðnuleysingi sem varla fer út úr húsi. Dísa hefur nýlega keypt jurt sem þrífst illa enda er um að ræða sumarsýprus sem ekki er stofublóm heldur einær runni sem vex best... »
Eitur fyrir lengra komna
Eitur fyrir byrjendur er önnur skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl, og tekur hinni fyrri, Hugsjónadruslunni, í flestu fram. Eiríkur skrifar nefnilega best þegar hann slakar á kúlinu og groddarakenndum sleggjudómum, sem eiga hvort sem er betur heima í hormónasveiflum menntaskólaáranna. Hugsjónadruslan var stútfull af slíkum rembingi sem gerði fátt annað en að hamla framrás efnilegrar... »
Eitur fyrir byrjendur (Mengella)
Ég las, merkilegt nokk, Eitur fyrir byrjendur eftir EÖN í fyrsta skipti á dögunum. Mér var gefin bókin með því skilyrði að ég bloggaði um hana það sem mér fyndist. Byrjum á göllunum. Bókin var ekki nógu vel prófarkarlesin. Í ekki lengri bók var hvimleitt að rekast á stafsetningarvillur, a.m.k. eina beygingarvillu og klifandi orðalag. Pappírinn í... »
Eitur fyrir byrjendur (Kristján Atli Ragnarsson – blogg)
Næst tók ég millibláu bókina Eitur fyrir byrjendur eftir Eirík Örn Norðdahl. Ég þekki hann ekki persónulega frekar en Hauk Má en ég hafði reynt að lesa fyrstu skáldsögu hans, Hugsjónadrusluna, fyrir tveimur árum og gefist upp. Sú bók þótti mér ekkert sérstök, það verður að viðurkennast, en ég hef haft gaman af ljóðum... »
Eitur fyrir byrjendur (Víðsjá)
Halldór og Dísa eru sambýlingar en hafa aldrei sofið saman “svo vitað sé” eins og það er orðað. Samband þeirra byggir á einhverju öðru. Áralangri, en skringilegri vináttu, sem ekki er alveg ljóst í upphafi hvers vegna er svo sterk. Dísa og Halldór, sem eru aðalsöguhetjurnar í Eitri fyrir byrjendur, eftir Eirík Örn Norðdahl, eru... »
