Gæska

Gæska: Fjallræða um samtímann

Gæska: Fjallræða um samtímann

Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar, sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein... »

Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið

Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið

Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda, en allt of stór hluti hennar hefur einkennst af andleysi og fyrirsjáanlegri retórík. Það má nefnilega margt um hann Eirík segja en seint verður hann sakaður um að vera fyrirsjáanlegur í... »

„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því... »

Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga

Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga

Farsakennd ólíkindalæti kitla hláturtaugarnar í stórskemmtilegri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl um ástandið á Íslandi sem enginn sér fyrir endann á, hvorki í raunveruleikanum né skáldskapnum. Höfundur Gæsku er feikna stílisti sem þrátt fyrir látlausan flaum orða hefur hárbeittan, írónískan tón og gott vald á framvindunni og persónum sínum. Í bók Eiríks fá eiginlega... »

Nýr upplestur úr Gæsku

Nýr upplestur úr Gæsku

Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann... »

Upplestur úr Gæsku

Upplestur úr Gæsku

(ef þú ert á forsíðu skaltu smella á rauðu örina til að sjá myndbandið) »

Nýja skáldsagan mín: Gæska

Nýja skáldsagan mín: Gæska

Nú um mánaðamótin kemur út mín þriðja skáldsaga, Gæska. Mál & menning gefur út.  Á kápu segir: Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur... »