Ást er þjófnaður
Farið og náið í bókina og lesið hana – hvort sem þið borgið fyrir hana eða ekki
Ef það er ekki ljóst af því sem ég hef þegar skrifað þá skal ég segja það hreint út: Farið og náið í bókina hans Eiríks Arnar og lesið hana – hvort sem þið borgið fyrir hana eða ekki. Sjálfur splæsti ég lágmarksupphæð á höfundinn þrátt fyrir að ég hefði getað réttlætt mig frá... »
Vestfirskt rok inn í stássstofuna
Eiríkur hremmir lesandann frá byrjun, mig alla vega, og allar þær 155 blaðsíður sem kverið er rígheldur hann manni við efnið, vekur upp hjá manni þanka, bryddar upp á því sem maður hafði ekki áttað sig á og skerpir á hugsun manns og skoðunum á þessu álitamáli sem samband höfundarréttar og sköpunar er. Svona... »
Áttunda borðið í skrifmaríó (er þjófnaður)
Eiríkur er búinn að vinna áttunda borðið í skrifmaríó og allir sveppirnir eru orðnir að hjálmsdýrum Ég mæli sumsé hiklaust með bókinni Ást er þjófnaður. Hún er frábær, boðberi nýrra tíma og stimplar Eirík inn sem framsýnan listamann og hugsuð (er þetta nógu kjarnyrt og jákvætt til að vísa í á blogginu þínu,... »
Smuguviðtal
Öll sköpun er ást – hún er atlot við veröldina – og engin sköpun er sprottin af sjálfri sér, hún sprettur ekki úr tómi, heldur úr eins konar samræði og samræðu við heiminn. Ég vildi kannski vekja athygli á því að ef notkun eða misnotkun á hugverki er þjófnaður þá er það vegna þess að... »
Ritdómurinn er þjófnaður!
Ég lagðist upp í rúm rétt fyrir miðnætti, kvöldið sem ég keypti bókina. Þrem tímum síðar varð ég að þvinga mig til að hætta lestrinum. Ég trúi því varla sjálfur ég hafi heillast svona af bók um höfundarétt (því eins og áður sagði, hef ég ekki innblásin áhuga á efninu). En bókin er einfaldlega... »
Plöggið er þjófnaður
Þegar maður er búinn að skrifa bók, búa hana til prentunar og senda hana út í heiminn er eftir að fá einhvern til að lesa hana. Ég man ekki hvað ég hef gefið út margar bækur sjálfur – undir merkjum Nýhils, fyrst og fremst, en líka undir eigin merkjum, merkjum SLIS, Traktors og Tíu... »
Perspired by Iceland kynnir: Fréttatilkynningin er þjófnaður
Allur lestur er þjófnaður. Öll hlustun er þjófnaður. Allt áhorf er þjófnaður. Útgáfufélagið og bónusklúbburinn Perspired by Iceland kynnir – í samstarfi við SLIS, Sumarbúðir listhneigðra sósíalista – sína fyrstu prentuðu afurð: Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl er ritgerðasafn um höfundarétt, þjófnað og framtíðina í ótal örlitlum hlutum, bók sem sett var... »