Af steypu

Fríða um Af Steypu

Fríða um Af Steypu

Þegar maður er nýbúinn að eignast barn verður maður um hríð dálítið fattlaus á umhverfi sitt. Þannig fór það framhjá mér um miðjan september mánuð þegar birtist dómur um Af Steypu í Morgunblaðinu. Enda hafði ég um allt annað að hugsa. Ég rakst síðan á hann fyrir tilviljun bara áðan. Það er Fríða Björk... »

Gauti um Af Steypu

Gauti um Af Steypu

Sumar bækur eru ekki fyrirferðarmiklar í umræðunni, þrátt fyrir að þær færi okkur lesendum meira forvitnilegt og skemmtilegt en sumar sem fyrirferðarmeiri eru. Reyndar segir það sennilega meira um umræðuna en bækurnar, því ég er ekki frá því að íslensk umræða almennt sem bókmenntagrein sé á fremur lágu stigi og það er næsta víst... »

Nú skelfur jörð og skakast himnakroppar!

Nú skelfur jörð og skakast himnakroppar!

Bókstafir skríða í felur fyrir komandi fyrirsát, ljóðlistin tekur jóðsótt og fæðir nýja bók: Af steypu, fimmta vers í afbókaflokki Nýhils! Af steypu meðhöndlar sjálfa meðhöndlun tungumálsins, setur efnið í fyrirrúm og spyr sig: Hvað á þetta allt saman eiginlega að þýða? Hvað er hægt að gera með ljóðlistinni? Myndljóð, konkretljóð, endurvinnsla, hömlur, konseptljóðlist... »