Brandarablandarar
Með sviðið gras í nösum og hvínandi blóð í æðum kynnir Nýhil hina NÝJU LJÓÐLIST! – sem ekki bara er ókeypis heldur hreyfir sig, suðar, gargar og dansar! Rafbókin Brandarablandarar eftir Eirík Örn Norðdahl og Jón Örn Loðmfjörð er sjálfstætt framhald / endurvinnsla ljóðabókar Eiríks, Blandarabrandarar , frá árinu 2005 – stafrænt unnin með hljóðaljóðum og myndrænni flórritun, fjarritun og forritun, svo jafnvel teknókratana fer að klæja í ljóðanefið. Verandi einhverjir þeir mestu öðlingspiltar ísa lands skerja – mæðrum sínum og feðrum til óhaminna stoltkasta – hafa þeir Loðmfjörð og Norðdahl ákveðið að gefa alla sína vinnu við stórvirkið og leyfa þjóðinni ófjötraðri að njóta hinnar stafrænu ljóðlistar, dansandi og syngjandi bókstafa sem einskis beiðast annars en takmarkalausrar dásömunar landsins yndislegu karla og kvenna.
Ljóðin munu birtast eitt af öðru næstu vikurnar, og hafa þessi fimm þegar litið dagsins ljós:

[...] is a collaboration between myself and Icelandic poet and programmer Jón Örn Loðmfjörð. Click here for Brandarablandarar, and the titles of the poems for a text about the work, and then the purple [...]
[...] out the new digital version of Blandarabrandarar, Brandarablandarar here, an electronic free-book by me and Jón Örn Loðmfjörð. The poems that have been posted so far [...]