Batista
Batista með rist eista í leista,
brást best með ást og sást síst
á hesti með ostrur í ístru,
virtist óstjórnlega æstur í estragon.
Brást best með ást og sást síst
pústandi eða pústrandi pestir
virtist óstjórnlega æstur í estragon
estrógen og astralplön.
Pústandi eða pústrandi pestir,
pastaskrúfur og póstlúgur,
estrógen og astralplön,
tvistandi Batista í ástandi.
Pastaskrúfur og póstlúgur
batististískur býst bastarðurinn
tvistandi Batista í ástandi
til að bösta býsn af beltisdýrum.
Batististískur býst bastarðurinn
við brjóstabrestum og bestíuköstum
til að böstuð býsn af beltisdýrum
óttist af gustuk gastronómistíska gesti sína.
Með brjóstabrestum og bestíuköstum
sást Fást slást í brest og nást,
óttast af gustuk gastronómistíska gesti sína
astmaveikur yst í eystra austri.
Sást Fást slást í brest og nást,
brást best með ást og sást síst
astmaveikur yst í eystra austri.
Batista með rist eista í leista.