Ú á fasismann – og fleiri ljóð

Ú á fasismann – og fleiri ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl er einstök myndljóðabók. Hér gefur að líta safn myndljóða þar sem stjórnmál eru beruð fyrir börnum, framtíð bókmennta kortlögð á einfaldan en átakalegan hátt, hér eru myndrænar framburðaæfingar, ljóðræn mótmæli, hvatningaorð til alþýðu svo hvín í svitaholunum, perlur úr ljóðaperlum Jónasar og það sem hetjur Íslendingasagna gætu vel hafa sagt. Byltingin er vissulega ekkert teboð en við skulum samt úa saman á fasismann.
Með myndljóðunum fylgja hljóðaljóð á diski sem tekin voru upp í stúdíói Mugisons fyrir vestan – þar sem illt eðli fasismans er tvíundirstrikað og tíundað án afsláttar. Hlustaðu á hann líka ef þú þorir og sannaðu til: Þetta er magnaðri seiður en nokkur partýmúsík sem þú hefur áður prófað.
Eiríkur Örn hefur verið ótrúlega iðinn og ötull sem skáld, rithöfundur og þýðandi. Áður hefur hann gefið út ljóðabækurnar Heimsendapestir, Nihil Obstat, Blandarabrandarar, Handsprengja í morgunsárið (ásamt Ingólfi Gíslasyni) og Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum! Einnig skáldsögurnar Hugsjónadruslan og Eitur fyrir byrjendur.
Eiríkur hlaut Íslensku þýðingarverðlaunin 2007 fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Móðurlaus Brooklyn. Nýlega kom út hjá Máli og menningu barnabókin Doktor Proktor og prumpuduftið í þýðingu Eiríks og á næstunni kemur út safnbók þýðinga hans á völdum ljóðum Allens Ginsberg, sem ber heitið Maíkonungurinn.
Mál og menning gefur út.
UMSAGNIR
„Eiríkur Örn Norðdahl er fegursta, viðundurlegasta blómstrið í aldingarði íslenskrar ljóðlistar. Hann er skáld ætingar og upplausnar, fyrirlitlegur geldingur, afkvæmi ristavélar og handbókar um smíði klasasprengja. Og hann er fyrsta og besta 21. aldar ljóðskáld Íslendinga.“
Steinar Bragi rithöfundur
„Nýjasta ljóðabók Eiríks Arnar, Ú á fasismann, er að sínu leyti framhald af ýmsu því sem sést hefur í fyrri bókum höfundar, en hér má segja að dirfskan sé færð upp um fjóra táknfræðilega gíra. [...]Að öllu samanlögðu er bókin Ú á fasismann því fjölþætt upplifun og órækur vitnisburður um að Eiríkur Örn Norðdahl er fullfær um að reisa kvæði úr rústum og rusli tímans.“
Hjalti Snær Ægisson / Víðsjá
„Þetta er skáldskapur sem hafnar lýrík, skáldskapur sem efast um sígilda hæfni ljóðsins til að tjá sannleik síns tíma […] hún er bráðfyndin, háðsk og orðheppin, líka ósvífin og örvandi, orð í tíma töluð. […] Skáldið okkar er hér í fylkingarbrjósti, baðar hetjur gærdagsins háði, býður þeim birginn og nauðgar þeim uppá nöturlegan (tilgangslausan) nútímann með framandi tungum. Aðför bókarinnar að viðteknum smekk og (meintri) úreltri óskhyggju smáborgarans/elítunnar felst líka í því að “lækna líkt með líku”, rifa saman slitinn skrokk með slitnum þræði, afhjúpa fordóma með fordómum, hirta gula pressu með því að mála heiminn hlandgulan og siga óhljóðum á hávaða, bregða fæti fyrir höfuðstaf með öðrum verri.“
Sigurður Hróarsson – Fréttablaðinu