Hróarskelduhátíðin

Allir eru alltaf í stuði á Hróarskeldu.

Kæru vinir.

Á morgun flýg ég til Danmerkur til þess að lesa á Hróarskelduhátíðinni – upplýsingar hér og hér og dagskrá hér. Ég tek þátt í tveimur uppákomum – annars vegar fikta ég með texta endurvinnslutólið RE ACT OR á föstudaginn klukkan 16.30 og hins vegar les ég upp (hljóðaljóð, fyrst og fremst) klukkan 18.00 á fimmtudag (á afmælinu mínu!). Hafi ég skilið þetta rétt heitir svæðið sem híumholleríið fer fram “Ordets Område”.

Annað bókað er Kuopio Sound Poetry Seminar í Kuopio í september og upplestrar í London og Varsjá í nóvember – og svo eitthvað í Berlín þegar Eitur fyrir byrjendur kemur út á þýsku í október eða nóvember. Meira um það síðar.

Við fluttum til Oulu fyrir nokkrum vikum og höfum það afskaplega gott. Ég vona að ykkur líði öllum vel.

Bestu kveðjur,
Eiríkur

Svaraðu kallinu!