Gæska: Fjallræða um samtímann

Gæska - ný skáldsaga.

Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar, sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta árs, verk sem slær nýjan og ferskan tón í uppgjörsbókmenntaflórunni, með þeim tilþrifum sem þarf til að verkið sligist ekki undan þunga hins aðkallandi sögulega veruleika sem liggur til grundvallar; með þessari skáldsögu eygjum við útlínur þess uppgjörs sem skáldskapurinn er fær um að veita í stríðinu við samtímann. [...]

.

Gæska er súrrealísk skáldsaga í upprunalegri merkingu hugtaksins. Það er líkt og verkið sé í beinu símasambandi við undirvitund íslensks samtíma og á löngum köflum verður það einna líkast draumaskjánum sem Freud stakk óbeint upp á að hlyti að vera til, og átti við hinn huglæga flöt, andlega tjaldið þangað sem kraumandi öflin í djúpinu varpa myndum sínum, brengluðum, þjöppuðum eða sundurrifnum, umbreyttum og umsköpuðum en þó alltaf í tengslum við fyrirmyndir. Þannig birtir skáldsaga Eiríks „kreppuna“ frekar í eins konar draumskjá en spéspegli; kreppan birtist hér sem sjúkdómseinkenni sárkvaldrar þjóðar. [...]

.

Líkt og skáldlegt orkuver virkjar Eiríkur þætti úr veruleikanum – vinnur úr þeim rafmagn, lætur þá enduróma í gegnum ofvaxnar og jafnvel afskræmdar en beintengdar, birtingarmyndir sem ögra lesanda um leið og þær minna hann á það sem allt of fljótt fellur í gleymskunnar dá. [...]

.

Gæska er fjallræða um samtímann flutt í létt-dulkóðuðum myndum, beitt og innihaldsrík.

…………………………………..- Björn Þór Vilhjálmsson í nýjasta TMM.

Gæska fæst á 1.990 krónur í vefverslun Forlagsins, og það sama í verslunum Eymundsson en 1.791 krónur í Bóksölu Stúdenta.

Fleiri umsagnir um Gæsku.

Tags: ,

Svaraðu kallinu!