Ofbeldisfullur drykkjumaður deyr – Tony Halme (1963-2010)

Háttvirtur 1. þingmaður Hina sönnu Finna, Tony Halme.

Háttvirtur 1. þingmaður Hina sönnu Finna, Tony Halme.

Finnski fyrrverandi þingmaðurinn Tony Halme var á góðri leið með að setja nýtt heimsmet í hvíthyskinni lágkúru þegar hann skaut sig á dögunum. Þegar ég heyrði fyrst af honum var mér sagt að hann talaði aldrei um forsetann, Törju Halonen, öðruvísi en sem lesbíuna. Tony Halme varð frægur sem boxari og glímukappi og náði inn á þing fyrir Hina sönnu Finna, popúlískan stjórnmálaflokk sem gerir út á útlendingahatur. Hann var þekktur fyrir að misnota áfengi, eiturlyf og eiginkonu sína allt hvað hann gat.

Eitt sinn gerði hann allt í senn og skaut á eiginkonu sína útúrdópaður og dauðadrukkinn. Þegar lögreglan afréð að síðustu að óhult væri að fara inn í íbúðina, sem var víst ekki fyrren Halme var svo örendur af eiturlyfjaneyslu að hann þurfti að liggja sofandi á spítala í mánuð á eftir, sökum alvarlegs súrefnisskorts, fannst hjá honum töluvert magn fíkni-, stera- og hormónalyfja. Byssan sem fannst, líkt og sú sem hann skaut sig með að lokum, var óskráð.

Þetta var þegar Tony Halme var enn á þingi. Og hann hætti ekki á þingi fyrir þetta. En hann var að vísu dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.

Það þarf kannski ekki að taka það fram, en Tony Halme var auðvitað alinn upp af ofbeldisfullum fyllibyttum.

Hann sagði meðal annars að rasismi væri það að berjast fyrir réttindum eigin kynþáttar og að útlendingar mættu koma og fara svo fremi sem þeir ynnu fyrir sér, en hann hataði það þegar aðrir lifðu á peningunum hans. Þá var hann mótfallinn því að fólk fengi atvinnuleysisbætur, barnabætur eða aðrar bætur með þeim rökum að fólk drykki bara út peningana. Þegar hann var eitt sinn spurður hvort hækka ætti fjármagnstekjuskatt svaraði hann af dæmigerðri yfirvegun og hógværð: „Hvað í andskotanum er það?“

Eftir að hann framdi sjálfsmorð skrifaði pistlahöfundur Iltalehti, Kaarina Hazard, pistil um kappann þar sem sagði meðal annars:

Maðurinn var brandari, meinlaust, klumplaga húsdýr með „exit only“ tattúverað á rassinn á sér og kom manni fyrst og fremst fyrir sjónir sem svínshnakki sem skjögraði um með alvæpni á fylleríum. Hann þekkti þó sinn vitjunartíma. Einsog Elvis með æluna eða Marilyn með læknadópið.

Hazard var í pistlinum að bregðast við því að Halme væri gerður að dýrlingi eftir andlátið, að henni þótti, og vildi minna á hvað hann stóð fyrir og hvaða merkingu það hefði að heiðra minningu hans. Hitt er svo alveg ljóst, að ég tel, að Halme hefði ekki gefið femínistanum Hazard mikið fegurri eftirmæli. Sjálf segir Hazard að hún hafi verið að gagnrýna umfjöllun fjölmiðla og ræða ímynd Halmes frekar en manninn sjálfan – og að fjölmiðlar hefðu ekki sýnt honum mikinn áhuga þegar hann var að taka sig á og hélt sér edrú, heldur allt að því hvatt hann til þess að dópa, drekka og skandalísera.

Ég vona að Íslendingum sé einhver þægð í því að vita að þeir eru ekki einir um það í heiminum að kjósa yfir sig vanvita.

Tags: ,

Eitt einasta smáblóm bregst við “Ofbeldisfullur drykkjumaður deyr – Tony Halme (1963-2010)”

  1. Haukur SM

    Já, eh, það er nokkuð gott að vita það. Eða hvað.

    #2717

Svaraðu kallinu!