Menn eru aftur farnir að tala um að banna blæjur. Níkab og búrka. Menn í Danmörku og menn í Frakklandi. Til að bjarga konum frá kúgun. En líkt og þegar gerð var innrás í Afganistan er væntumþykja þeirra í garð kvenna líklega fyrst og síðast (ó)þægilegt yfirvarp. Ég veit ekki hvort þetta er, þegar... »
Archive for January, 2010
Kindle, Stóri bróðir og höfundarrétturinn
Árið 2009 var bókinni 1984 eftir George Orwell eytt af Kindle. Í ljós hafði komið að sá sem bauð upp á bókina, rafforlagið MobileReference, hafði ekki rétt til að gefa hana út í netbókarformi og voru öll eintök innkölluð hið snarasta og þau endurgreidd. Hið sama gilti um hina dystópíu Orwells, Animal Farm. Bækurnar... »
Ofbeldisfullur drykkjumaður deyr – Tony Halme (1963-2010)
Finnski fyrrverandi þingmaðurinn Tony Halme var á góðri leið með að setja nýtt heimsmet í hvíthyskinni lágkúru þegar hann skaut sig á dögunum. Þegar ég heyrði fyrst af honum var mér sagt að hann talaði aldrei um forsetann, Törju Halonen, öðruvísi en sem lesbíuna. Tony Halme varð frægur sem boxari og glímukappi og náði... »
(óbirt færsla um kiljuna, skömmu eftir jól 2009)
Í hvert sinn sem rithöfundur sest niður til að tjá sig um gagnrýni (þá sérstaklega slæma gagnrýni) hefst úlfagólið: Ekki vera svona bitur. Rithöfundar eru skemmtikraftar og gagnrýnendur eru boðberar sannleikans um skemmtikraftana: Þetta er bara ekki fyndið. Rithöfundurinn á að vera slakur og ef hann ræður ekki við það á hann í það... »
Bókmenntakrítík
Jólin eru búin og ég er kominn aftur til Svíþjóðar. Búinn að þramma í gegnum íslenska jólabókaflóðið, graðga í mig jólamat á Ísafirði, þeytast milli ættingja með frumburðinn og koma mér aftur út. Vinn einsog skepna en nú fer að róast um, að minnsta kosti tímabundið – ýmislegt fyrirliggjandi en ekkert aðkallandi akkúrat næstu... »