Gæska – Víðsjárviðtal
Gæska heitir nýjasta skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl. Gæska er þriðja skáldsaga Eiríks en hann hefur einnig getið sér gott orð sem ljóðskáld og þýðandi. Í nýju bókinni fylgjast lesendur framanaf til skiptist með Freyleifu, ungri konu sem býr sig undir að stökkva út úr háhýsi, og íhaldsþingmanninum Halldóri Garðari, sem sér veröldina skyndilega í nýju ljósi, enda er sögusvið bókar Eiríks bæði framandlegt og kunnuglegt í senn. Ungar konur stökkva fram af háhýsum og Esjan brennur. Bók Eiríks hefur verið flokkuð sem hrunsbók í umræðunni nú fyrir jólin, bók sem fjalli um ástandið eftir hrun bankakerfisins, en hún á sér þó lengri aðdraganda en svo eins og Haukur Ingvarsson komst að í dag þegar hann settist niður með höfundinum.
—
Ég fór í viðtal í Víðsjá, í Víðsjá í viðtal, við Hauk Ingvarsson, við Haukur Ingvarsson í Víðsjárviðtali.
