Nýr upplestur úr Gæsku
Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann læsir sig inni og skrópar í þinginu. En þegar ung marokkósk stúlka biður hann um að hjálpa sér að leysa foreldra sína úr klóm íslensku ríkisstjórnarinnar öðlast líf hans áður óþekktan tilgang …
*
Gæska er ótrúlega hugmyndarík og fyndin skáldsaga um allt sem skorti á Íslandi síðustu ár: Jafnrétti, bræðralag og meðalhóf – og allt hitt sem nóg var af: Græðgi, heimsku og fordóma. Ímyndunarafli Eiríks Arnar Norðdahl halda engin bönd og hér nýtur stílgáfa hans sín til fullnustu.
