Hangs og leiðindi
Það er leiðinlegt að vera einn heima. Eiginlega þykir mér fátt leiðinlegra. Og nú er ég einn heima. Ég veit aldrei hvað ég á af mér að gera. Hef ekki eirð til að gera neitt. Sit bara og klóra mér og bíð, hangsa og bíð. Ég sem gæti verið í jólaboði Forlagsins.
Á sunnudaginn fer ég til Austurríkis og kem fram á viðburði á vegum austurríska ljóðatímaritsins Lichtungen. Þar verða líka Kristín Eiríksdóttir, Steinar Bragi og Ólöf Arnalds. Upplestur á mánudag, heimferð á þriðjudag. Eða aðfararnótt miðvikudags. Á föstudag flýg ég síðan til Íslands og verð í Reykjavík til 11. des og síðan á Ísafirði fram yfir jól, og einhverja daga í Reykjavík aftur fyrir 7. janúar. En þá fer ég aftur út. Það er sem sagt útlit fyrir meira aksjón, afar bráðlega, en akkúrat núna gerist ekki neitt. Ekki bofs. Ég bara sit og bíð og hangsa.
Frekari upplýsingar um viðburðinn í Graz í Austurríki (á þýsku) má finna hér.
Vikuna sem ég verð í Reykjavík – 4.-11. desember – ætla ég að nota til að kynna Gæsku. Ef einhver vill bóka mig í upplestur eða annað er netfangið kolbrunarskald@gmail.com.