Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið

Gæska - ný skáldsaga.

Gæska - ný skáldsaga.

Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda, en allt of stór hluti hennar hefur einkennst af andleysi og fyrirsjáanlegri retórík. Það má nefnilega margt um hann Eirík segja en seint verður hann sakaður um að vera fyrirsjáanlegur í verkum sínum, hvað þá að hann skorti ímyndunarafl!

.

Sérstaklega er vert að velta lokahluta bókarinnar fyrir sér í sambandi við taumlausa sjálfsvorkunn þess hluta Íslendinga sem helst vilja láta svo að tímabundnir fjárhagserfiðleikar Íslands geri það að verkum að sú röksemd sé blákaldur sannleikur að Íslendingar hafi það nú verra en flestir aðrir.

.

Þegar að 90 milljónir flóttamanna flykkjast til Íslands verður það nefnilega öllum dagljóst hversu vandamál gærdagsins, að redda einni fjármálakreppu, voru mikið smámál á við það að fæða og klæða tugi milljóna öreiga. Þetta er þó veruleiki sem blasir við bróðurparti heimsbyggðarinnar sem væri meira en til í að skipta út öllum sínum hörmungum fyrir eitt stykki Icesave-klúður.

.

Bók Eiríks er fjörug og kröftug þeysireið sem eiginlega yrði að vera animation-mynd (hvað heitir svoleiðis á íslensku?) ef hún yrði kvikmynduð. Svo sjónræn er bókin, litrík og margbrotin. Eiríki hefur aldrei tekist betur að nýta sér einn af sínum meginstyrkleikum, að búa til fljótandi sögusvið sem spilar mjög á skynjun lesandans. Ísland er orðið að alþjóðavæddu fyrirbæri þar sem framandi kringumstæðum er smokrað hér og þar inn í íslenskan hversdagsleika, eins og ekkert sé sjálfsagðara.

.

[...] Gæska er athyglisvert listaverk sem færir umræðuna og hugmyndaheim íslensku kreppunnar upp á æðra stig og verður vonandi uppspretta frjórrar umræðu um kreppur í víðara samhengi en innan níðþröngra ramma útreikninga um þjóðarskuldir og pólitísks karps um það hvort það var náhirð eða náskershirð sem setti Ísland á hausinn.

Sigurður Ólafsson um Gæsku á Bókmenntavefnum.

Tags: ,

Svaraðu kallinu!