Eitur fyrir byrjendur kemur út í Þýskalandi

Kápumynd: Eitur fyrir byrjendur. Kápuna gerði Una Lorenzen.

Kápumynd: Eitur fyrir byrjendur. Kápuna gerði Una Lorenzen.

Önnur skáldsaga mín, Eitur fyrir byrjendur, sem kom út hjá Nýhil árið 2006, kemur út á þýsku á næsta ári hjá forlaginu Kozempel & Timm, sem sérhæfir sig í norrænum fagurbókmenntum. Skrifað var undir samning vegna þessa fyrr í haust. Mál & menning keypti útgáfuréttinn á bókinni fyrr í ár.

Eitur fyrir byrjendur hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda á Íslandi þegar hún kom út, líkt og sjá má hér, en hún fjallar um samlífi eða ólífi þeirra Halldórs og Herdísar. Halldór og Herdís búa saman en hafa ekki kysst svo vitað sé. Þegar Herdís færir inn á heimilið varhugaverða pottaplöntu og kynjafræðinemann Högna tapar Halldór hæfileikanum til að fara úr húsi en fær því meiri áhuga á byrlun eiturs. Eitur fyrir byrjendur er skáldsaga sem fjallar á næman hátt um samlíf ungs fólks.

Fyrir tæpri viku síðan kom út þriðja skáldsaga mín, Gæska, sem finna má í öllum helstu bókaverslunum.

Tags:

Svaraðu kallinu!