Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga

Esjan logar!

Esjan logar!

Farsakennd ólíkindalæti kitla hláturtaugarnar í stórskemmtilegri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl um ástandið á Íslandi sem enginn sér fyrir endann á, hvorki í raunveruleikanum né skáldskapnum. Höfundur Gæsku er feikna stílisti sem þrátt fyrir látlausan flaum orða hefur hárbeittan, írónískan tón og gott vald á framvindunni og persónum sínum. […] Í bók Eiríks fá eiginlega allir ,,á kjaftinn«. Bókmenntirnar og allir Íslendingar en þó sérstaklega þingmenn og ríkisstjórn og aðrir sem með valdið fara. […] Trúlegt er að með Gæsku greini höfundur ástandið best af þeim sem hafa skrifað bækur um það sem er að gerast hjá okkar ringluðu þjóð; að minnsta kosti er hann fyndinn og beittur í gegn. Vert er að geta útlits bókarinnar en kápan er hugvitsamlega hönnuð af Jóni Ásgeiri. Ringlaðir lesendur eiga skemmtilegt skammdegi í vændum með þessa fallegu bók í hönd.

Fjórar stjörnur – Hrund Ólafsdóttir – Morgunblaðinu.

Uppfært – smellið á myndina til að lesa dóminn allan.

Tags:

Eitt einasta smáblóm bregst við “Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga”

  1. Haukur SM

    Tel hamengju!

    #2642

Svaraðu kallinu!