Á metsölulista Eymundssonar

Númer tólf - það er ég!
Gæska er í tólfta sæti metsölulista Eymundssonar. Ég er ekki vanur að sjást mikið á þessum listum og kannski eru ekki mörg eintök á bak við þetta – ég veit ekki hvort bóksalan er almennilega komin í gang – en þetta gleður mig nú samt. Svona þarf nú lítið til.
Hér á vinstri hönd má horfa á upplestur úr bókinni – og það er von á fleirum. Það er hægt að kaupa bókina í vefverslun Forlagsins, en auk þess á Eymundsson.is – á Bóksölu stúdenta og auðvitað í öllum almennilegum bókaverslunum.
Síðast en ekki síst rakst ég á Twitter-færslu Árna Matt, bókmenntagagnrýnanda á Morgunblaðinu: „Eiríkur Örn Norðdahl er séní“.
Nú er ég sem sagt smekkfullur af sjálfum mér, grobbinn og sjálfbirgingslegur, sjálfshælinn, rogginn og áreiðanlega hundleiðinlegur fyrir vikið.