„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

Gæska - ný skáldsaga.

Gæska - ný skáldsaga.

Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því naív í einlægni sinni. Þeir sem þekkja fyrri skrif Eiríks, bæði ljóð, skáldsögur og greinar vita að hann er fádæma stílisti og hefur fjölmargar stíltegundir á valdi sínu. Stíllinn á Gæsku er bæði fjölbreyttari og þróttmeiri en á fyrri skáldsögum Eiríks, hann leyfir sér meira, bæði flóknari stíl og meiri hasar og læti í lýsingum og atburðum.

Jón Yngvi Jóhannsson gaf Gæsku fullt hús – fjórar stjörnur – á Pressunni.

Tags: ,

Svaraðu kallinu!