Archive for November, 2009

Hangs og leiðindi

Friday, November 27th, 2009
Hangs og leiðindi

Það er leiðinlegt að vera einn heima. Eiginlega þykir mér fátt leiðinlegra. Og nú er ég einn heima. Ég veit aldrei hvað ég á af mér að gera. Hef ekki eirð til að gera neitt. Sit bara og klóra mér og bíð, hangsa og bíð. Ég sem gæti verið í jólaboði Forlagsins. Á sunnudaginn... »

Tags: , , ,
Posted in Fjallabaksleiðin | No Comments »

Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið

Tuesday, November 24th, 2009
Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið

Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda, en allt of stór hluti hennar hefur einkennst af andleysi og fyrirsjáanlegri retórík. Það má nefnilega margt um hann Eirík segja en seint verður hann sakaður um að vera fyrirsjáanlegur í... »

Tags: ,
Posted in Bækur, Gæska | No Comments »

Fríða um Af Steypu

Tuesday, November 24th, 2009
Fríða um Af Steypu

Þegar maður er nýbúinn að eignast barn verður maður um hríð dálítið fattlaus á umhverfi sitt. Þannig fór það framhjá mér um miðjan september mánuð þegar birtist dómur um Af Steypu í Morgunblaðinu. Enda hafði ég um allt annað að hugsa. Ég rakst síðan á hann fyrir tilviljun bara áðan. Það er Fríða Björk... »

Tags: , ,
Posted in Af steypu, Bækur | No Comments »

„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

Wednesday, November 18th, 2009
„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!

Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því... »

Tags: ,
Posted in Bækur, Fréttir, Gæska | No Comments »

Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga

Sunday, November 15th, 2009
Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga

Farsakennd ólíkindalæti kitla hláturtaugarnar í stórskemmtilegri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl um ástandið á Íslandi sem enginn sér fyrir endann á, hvorki í raunveruleikanum né skáldskapnum. Höfundur Gæsku er feikna stílisti sem þrátt fyrir látlausan flaum orða hefur hárbeittan, írónískan tón og gott vald á framvindunni og persónum sínum. Í bók Eiríks fá eiginlega... »

Tags:
Posted in Bækur, Fjallabaksleiðin, Gæska | 1 Comment »

Skyggnilýsing og jólabókaflóð

Friday, November 13th, 2009
Skyggnilýsing og jólabókaflóð

Staddur í miðju bókaflóði með ólgu í maganum af óþolinmæði. Með ólgu í höfðinu, útlimunum og þrútin augu af lúslestri dagblaða í leit að einhverju um eitthvað sem viðkemur sjálfum mér. Jólabókaflóðið veldur óþolandi sjálfhverfu. Það er líka öðruvísi að vera með skáldsögu en ljóðabók. Maður er löngu hættur að gera ráð fyrir að... »

Tags:
Posted in Fjallabaksleiðin | 2 Comments »

Nýr upplestur úr Gæsku

Tuesday, November 10th, 2009
Nýr upplestur úr Gæsku

Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann... »

Tags:
Posted in Bækur, Gæska | No Comments »

5ta tölublað: Mbfr

Monday, November 9th, 2009
5ta tölublað: Mbfr

Nýhil og Tíu þúsund tregawött kynna – samanskroppin af skömm, en tilneydd, kúguð, lömuð af ótta og í allan stað miður sín: Bókverk? Ljóð? Vefur? Moggablogg? 5. tölublað Tíu þúsund tregawatta? Readymade? Myndlist? Myndbandsljóð og ljóðamyndband? Margmiðlunargagnkvæmisaðilavettvangur? Óforskömmuð auglýsing og staðgengill fyrir lamað Morgunblað? Mbfr er allt þetta, allt annað og allt sem þú... »

Tags: ,
Posted in Fréttir | No Comments »

Eitur fyrir byrjendur kemur út í Þýskalandi

Thursday, November 5th, 2009
Eitur fyrir byrjendur kemur út í Þýskalandi

Önnur skáldsaga mín, Eitur fyrir byrjendur, sem kom út hjá Nýhil árið 2006, kemur út á þýsku á næsta ári hjá forlaginu Kozempel & Timm, sem sérhæfir sig í norrænum fagurbókmenntum. Skrifað var undir samning vegna þessa fyrr í haust. Mál & menning keypti útgáfuréttinn á bókinni fyrr í ár. Eitur fyrir byrjendur hlaut... »

Tags:
Posted in Bækur, Eitur fyrir byrjendur | No Comments »

Á metsölulista Eymundssonar

Wednesday, November 4th, 2009
Á metsölulista Eymundssonar

Gæska er í tólfta sæti metsölulista Eymundssonar. Ég er ekki vanur að sjást mikið á þessum listum og kannski eru ekki mörg eintök á bak við þetta – ég veit ekki hvort bóksalan er almennilega komin í gang – en þetta gleður mig nú samt. Svona þarf nú lítið til. Hér á vinstri hönd... »

Tags:
Posted in Fjallabaksleiðin | No Comments »