Nýja skáldsagan mín: Gæska

Gæska - ný skáldsaga.

Gæska - ný skáldsaga.

Nú um mánaðamótin kemur út mín þriðja skáldsaga, Gæska. Mál & menning gefur út.  Á kápu segir:

Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns. Það skíðlogar í Esjunni og Reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann læsir sig inni og skrópar í þinginu. En þegar ung marokkósk stúlka biður hann um að hjálpa sér að leysa foreldra sína úr klóm íslensku ríkisstjórnarinnar öðlast líf hans áður óþekktan tilgang …

*

Gæska er ótrúlega hugmyndarík og fyndin skáldsaga um allt sem skorti á Íslandi síðustu ár: Jafnrétti, bræðralag og meðalhóf – og allt hitt sem nóg var af: Græðgi, heimsku og fordóma. Ímyndunarafli Eiríks Arnar Norðdahl halda engin bönd og hér nýtur stílgáfa hans sín til fullnustu.

Tags:

allt þetta fólk bregst við “Nýja skáldsagan mín: Gæska”

  1. Spenntur

    Til hamingju með það. Þú ert vel að skáldsögu kominn og ég er spenntur.

    #2601
  2. olla

    jibbí, ég hlakka til.

    #2612

Svaraðu kallinu!