Vesturás
Við komum til Vesturáss í morgun. Bærinn, sem er á stærð við Reykjavík, liggur vestan við Baðlundsás, en hefur nafn sitt ekki af honum heldur er það afbökun á Vestri Árósum. Eystri Árósar eru þá Uppsalir. Hér má meðal annars finna elsta menntaskóla í Svíþjóð, Rudbeckianska Gymnasiet, frá árinu 1623, og hæsta kokteilbarinn, Sky Bar, sem er á 24. hæð í húsi sem nefnist Skrapan. Sá bar er í sumarfríi og við fórum því á næsthæsta kokteilbarinn í Svíþjóð, Karlsson på taket (Kalla á þakinu). Hann er á 23. hæð. Ég geymi kokteilana þar til Sky Bar opnar aftur og fékk mér bara bjór.
Ég hef verið að kynna mér þetta og hef meðal annars komist að því að hér fannst fyrsta sænska tilfellið af kúaflensu og hér var fataverslunarkeðjan H&M stofnuð. Ég vissi fyrir að skáldið Tomas Tranströmer hefði búið hér megnið af ævi sinni en ekki að rapparinn Promoe væri héðan.
Um þriðjungur íbúana fer á reiðhjóli til vinnu og hér hefur enginn verið tekinn af lífi (af yfirvöldum) síðan árið 1900. Hér ættu allir að búa.
[...] á húsinu okkar. Djáknabergið (eða hóllinn) er ekki kennt við íslenska djákna (frekar en Vesturás á við ás) heldur á orðið hér við menntaskólanema og í þessu tilfelli menntaskólanema við [...]