Seething Wells – dautt pönkskáld
Dr. Gunni færir þær fréttir að pönkskáldið Steven Wells hafi látist fyrir um mánuði síðan. Swells tilheyrði hópi skálda sem nefndust röflskáldin (e. ranting poets) – ásamt fólki eins og Patti Smith, Richard Hell, Attila the Stockbroker og fleirum. Swells er líka af sömu kynslóð breskra skálda og Billy Childish, pönkarinn sem sótti heim fyrstu ljóðahátíð Nýhils og þeir eru að mörgu leyti skyldir.
Ég held raunar að Swells hafi hætt að yrkja fyrir löngu síðan. Hann hitaði oft upp fyrir pönksveitir á borð við The Fall í gamla daga en gerðist síðar íþróttablaðamaður, grínisti og stundaði fleiri skyld verk.
En hann sem sagt lést fyrir um mánuði síðan úr eitlakrabbameini. 49 ára gamall. 
Þetta brot er úr ljóðinu Cadillacs in Bradford, af plötu sem Swells gaf út með Atilla the Stockbroker.
Rebels with receding hairlines,
beer guts and failing eyesights.
A thug with a mortgage,
a rebel with wife and kids,
not so much without a cause
as a lingering, festering menopause.
There are no Cadillacs in Bradford.
Just old men going grey,
and a brand new crop of shocking punks
will end up just the same.
[Línuskiptingar eru mínar – ég á þetta ljóð bara á hljóðfæl]
Og hér má heyra þá hlið plötunnar sem Swells er á (Attilla er hinumegin):
Loks má hér sjá Wells röfla um byssur og Bandaríkin: