Meiri Svíþjóð

Það rignir í Vesturási eftir stanslaust hávaðasólskin frá því við komum á laugardag. Hér lóna ég unaðsdrukkinn á kafi í sænskum lúxus. Í matvöruversluninni minni er boðið upp á 20 ólíkar mjólkurtegundir, þ.á m. sérstaka mjólk til að hita í kaffi latté. Allt kostar minni pening en í Finnlandi (þó ekki jafnist það á við þriðjaheimsprísana á Íslandi). Það eru svalir á íbúðinni, stórir opnanlegir gluggar í öllum herbergjum, hátækni eldavél og stórt eldhúsborð.  Flutningskassarnir eru flestir tómir, búið að setja saman hillur, tengja hljómflutningsgræjur og raða í skápa (að mestu). Í dag eldaði ég meðal annars omelettu með ferskum kartöflum og gulrótum (í hádeginu) og fjólumóra í tómata- og ediksósu (í kvöldmat).

Lífið í Svíþjóð er sem sagt ein paradísarvist. Raunar rennur mig í grun um að orsökina fyrir öllum þessum lúxus sé að finna í eðlislægu nöldri Svía. Þeir kvarta svo mikið að það er varla hægt að bjóða upp á neitt nema það sem er algerlega fullkomið. Nöldrið kemur auðvitað í veg fyrir að þeir njóti þess til fulls. En við útlendingarnir njótum hins vegar góðs af því. Ég er Íslendingur og geri ráð fyrir hálfkæringi í veröldinni, vegna þess að ég er alinn upp við það. En Svíarnir eiga ekkert að bjóða mér nema það allra besta.

Í dag hlustaði ég á útvarpið. Þar var meðal annars þáttur á ensku – nokkurs konar Orð skulu standa (nema léttari). Og síðan var þjóðarsál þar sem bar hæst er kona nokkur hringdi inn til að kvarta undan þeim fordómum sem áflogahundar þurfa að þola.

Við bregðum okkur úr bænum í brúðkaup á næstu helgi. Þegar við komum aftur ætla ég í frí. Ég hef ekki tekið mér frí síðan … úff. Ég man ekki einu sinni hvenær ég tók mér frí síðast. Varla síðan ég flutti aftur frá Íslandi fyrir tveimur og hálfu ári. Og þar áður eyddi ég flestum fríum í að skrifa og þýða. En jæja. Vonandi eina viku og kannski jafnvel heilar tvær.

Tags:

allt þetta fólk bregst við “Meiri Svíþjóð”

  1. Qua?

    Ertu kominn í sæluna? Hvar ertu? Það væri gaman að drekka mér þér kaffi eða köff værir þú í G-borg.

    p.s
    Sammála með búðirnar. Þær eru allar flottar. Meir að segja Trabantinn í matarkeðjunum herna. -Willys. Dúndurflott búð.

    #741
  2. Eiríkur Örn

    Ég er í Västerås. Það er fulllangt fyrir kaffi.

    #743

Svaraðu kallinu!