Ljóðahátíð Nýhils

Valur Brynjar Antonsson les á ljóðahátíð 2009. Myndina teiknaði Tómas Ponzi - tap.blogspot.com.

Valur Brynjar Antonsson les á ljóðahátíð 2009. Myndina teiknaði Tómas Ponzi - tap.blogspot.com.

Á dögunum missti ég af ljóðahátíð Nýhils. Sem var leiðinlegt á alla mögulega kanta, þó ég hefði raunar hvergi viljað vera nema einmitt hér var það ekki vegna þess að ég vildi missa af ljóðahátíð. En ljóðahátíð er löngu orðin fullorðin og spjarar sig ágætlega án mín. Ég hef þó í huga að missa ekki af henni mikið oftar.

Ég hugga mig við að fyrir utan tvö skáldanna, Vivek Narayanan og Pelle Sigsgaard, hef ég séð allt þetta fólk troða upp. UKON kom fram á Oslo Poesifestival ásamt hinum æðislegu Njurmännen, og ég hef meira að segja gert útvarpsinnslag um hann. Ciu Rinne hef ég lesið með í Helsinki og Malmö, Dmitry Golynko las ég með í Helsinki, Angela Rawlings hefur áður verið á ljóðahátíð og ég hef hitt hana í Kanada og í Brussel, Morten Søndergaard var á Oslo Poesifestival og ég las með Mette Moestrup í Ulvik í Noregi. Það var helst ég saknaði þess að sjá Anton Helga ekki lesa upp.

Ljóðaþýðingar og ljóð á íslensku má m.a. lesa í nýju Tregawöttunum, sem Haukur Már ritstýrði. Auk þýðinganna sem má finna í Tregawöttunum eru nokkrar sem finna má á þessari síðu. Ást og stærðfræði eftir Mette Moestrup og Án titils eftir UKON. Auk þess brot úr Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga eftir Angelu Rawlings. Þetta og margt fleira má finna með því að smella á ljóð/ljóðaþýðingar hér efst á síðunni.

Meðal viðburða á hátíðinni var myndbandsljóðasýning sem ég fékk að stýra. Fæst verkanna er hægt að horfa á á netinu en hér eru samt nokkur:

Tyger eftir William Blake.

The Death of William S. Burroughs eftir John Giorno og Antonella Faretta.

Just say no to Family Values eftir John Giorno og Antonella Faretta.

1. des ávarp forsetans eftir Jón Örn Loðmfjörð.

Margræðni málsins eftir Jón Örn Loðmfjörð.

Og síðast en ekki síst, Höpöhöpö Böks eftir sjálfan mig:

Loks vil ég benda á teikningar Tómasar Ponzi frá hátíðinni.

Tags: , , , , , , , ,

Svaraðu kallinu!