Framhjá flugnaspaðanum

Västerås

Västerås

Þetta verður ekki nógsamlega undirstrikað: Það er ekki sumar á Íslandi. Það hefur aldrei verið og ef ekki verður fyrir einhverjar hamfarir mun það aldrei koma. Eitt sinn hélt ég að Ísland væri eins og norðurlöndin. Það væri svona temprað sumar, Reykjavík, Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmur, Helsinki. Þetta er allt saman lygi. Gott sumar á Íslandi er ekki nema skítsæmilegt vor í Skandinavíu. Og sumar víðast hvar annars staðar er svo óþolandi helvíti að þar leggst fólk í hýði með svaladrykki undir þeytandi viftum bróðurpart dags.

Á sumrin hefst maður ekki við í sólinni. Það er óbærilegt nema maður sé í nánd við sjóinn eða stöðuvatn til að kæla sig niður í. Á Íslandi fer enginn í sjóinn nema til að sýna fram á hreysti sína. Þar eru sérstakir klúbbar um þetta áhugamál. Eins og það eru til klúbbar um fallhlífastökk, ofsaakstur og makaskipti. Í heiminum (það er að segja hinum löndunum í heiminum) er einfaldlega ekki ástæða til að mynda klúbb um jafn sjálfsagðan hlut.

Konan mín fór í annað bæjarfélag og skildi mig eftir í hitabylgjunni. Ég sit við í einglyrni einu fata með flugnaspaða og sný upp á agnúa í skáldsögu, broddskipti broddum og ydda lýsingarorð á meðan óðar flóðamoskítóflugur (sem eru ansi villtar af leið og vondar í skapinu) fljúga leiftursnöggt framhjá lífshættulegum flugnaspaðanum til að nærast á blóði mínu.

Á sumrin gengur maður í stuttbuxum og bol. Ekki bara vegna þess að maður getur það heldur vegna þess að annars er manni ekki líft (ef maður gæti verið í síðbuxum myndi maður vera í síðbuxum – til að losna við moskítóflugurnar). Maður gengur í sandölum af sömu ástæðu. Hvítum fötum.

Vegna þess að annað er ekki hægt á sumrin.

allt þetta fólk bregst við “Framhjá flugnaspaðanum”

  1. Kristín í París

    Innilega til hamingju með nýja útlitið. Hvítt á svörtu er hreinlega óþolandi aflestrar fyrir viðkvæmar kellingar.
    Varðandi svalandi íslenskt sumar, þá er það nú ansi hressandi og fallegt þegar sólin skín þó maður þurfi alltaf að vera í lopapeysunni.

    #2199
  2. Haukur SM

    Hvítt á svörtu er samt umhverfisvænna og fer betur með augun.

    Að glápa á hvítan bakgrunn meðan maður les er ekki ósvipað því að stara á ljósaperu.

    HSM

    #2200
  3. Ég er ekki frá því að líkindin við barnalandsishvefinn http://www.nino.is séu uncanny.

    #2201

Svaraðu kallinu!