Djáknaberg
Í dag fórum við í gönguferð um Djáknaberg sem liggur hér við hliðina á húsinu okkar. Djáknabergið (eða hóllinn) er ekki kennt við íslenska djákna (frekar en Vesturás á við ás) heldur á orðið hér við menntaskólanema og í þessu tilfelli menntaskólanema við Rudbeckianska Gymnasiet, sem lögðu stund á leikfimi og vopnaskak í garðinum.

Garðurinn er fullur af tilhöggnum steinum með alls kyns áletrunum, einum fimm hundrað talsins, aðallega á gamalli sænsku en einnig á latínu og íslensku.


(ég er ekki með nein dæmi um latínu, enda voru þau ekki jafn tíguleg – ora et labora (biðjið og vinnið) og annað álíka. Margar áletranirnar voru nafnamerkingar – hinn og þessi Svinhufvuden, Swedenborgar, Silverhjälmar og annað álíka aðalsslekti. En sumar voru jarðbundnari skilaboð eins og þessi hér:

Þarna stendur sem sagt: Försök o va folk. Reyndu að vera manneskja. Þetta gæti nú bara átt heima í hávamálum.
Hönnuðurinn á bakvið garðinn og áletranirnar var Sam nokkur Lidman sem var uppi á nítjándu öld. Nöfnin á steinunum eru nöfn aðalsins og annarra merkismanna – nema þau sem eru bara nöfn vina hans. Fyrir tæpum tuttugu árum síðan var ákveðið að á hverju ári yrði haldin samkeppni meðal skólafólks um eina nýja áletrun og vann stúlka að nafni Johanna Nyström fyrsta árið með línunni: Hér mun ég ætíð standa en þú skalt fara í veg og lifa. Ekki veit ég hvort það var vegna óánægju með þessa speki Johönnu eða hvort einhver almenn íhaldssjónarmið hafa verið á ferð en það var í öllu falli aldrei haldin önnur keppni og er þetta því eina áletrunin í garðinum fyrir utan þær sem Lidman fann upp á. Og svo auðvitað auglýsingar og aðrar slíkar merkingar – eins og þessa hér:

Það sést ekki vel á þessari mynd en grænu stafirnir undir ruslakarlinum mynda orðið Molok. Molok er finnskt ruslakompaní frá Nokia. En nafnið er fengið af eldguðnum Mólok sem meðal annars er nefndur í Paradísarmissi Miltons og Ýlfri Ginsbergs. Mólok er mikill myrkraprins sem rænir börnum af mæðrum sínum og gott ef hann étur þau ekki líka. Grikkir fórnuðu börnum sínum í eldinn fyrir Mólok. Ekki veit ég hvað vakir fyrir Finnunum í Nokia en það er sjálfsagt ekkert gott.
Rétt utan við þennan aðalsgarð, við Litlubrú yfir Svartá, fann ég svo aðra áletrun sem mér fannst ekki síður skemmtileg.

Himnaríki fyrir prestana,
helvíti fyrir kapítalistana,
jörðina fyrir öreigana!