Scream-upplestur
Toronto, Ontario, Kanada. Á mánudagskvöldið (13. júlí) las ég með Paul Dutton á Scream Festival hátíðinni úti í hlýrri en þægilegri sumarnóttinni (dagarnir hér eru ekki alveg jafn þægilegir. Við Paul vorum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og gekk bara þrælvel þrátt fyrir vesen með hljóðnema (við heyrðum ekki bofs í sjálfum okkur og vissum því ekki hversu viðkvæmir hljóðnemarnir voru). Og það var líka gaman.
Smellið á upplestrar hérna hægra megin til að sjá herlegheitin.
Næst á dagskrá er myndljóðaráðstefna í Turku og upplestur þar á laugardag – ásamt Geoff Huth, Nancy Huth, Christian Bök og fleirum.