Öskrað í hágarði – aftur til Kanada

Ég mun koma fram á The Scream Literary Festival, annað árið í röð. Hátíðin fer fram í Toronto í Kanada, dagana 2. til 13. júlí, og les ég síðasta daginn á viðburði sem nefnist Scream in High Park. Búist er við frá 750 til 1.000 manns (já, þetta eru bara ljóð). Auk mín munu lesa (a.m.k., listinn er ókláraður): Oana Avasilichioaei, Wakefield Brewster, Margaret Christakos, Peter Cullen, Jeramy Dodds, Lisa Foad, Susan Holbrook, Ryan Kamstra, Andrew Pyper og Adam Sol. Þema hátíðarinnar í ár er Dauði bókarinnar. Frekari upplýsingar fást á thescream.ca.

Tags: ,

One Response to “Öskrað í hágarði – aftur til Kanada”

  1. hmh

    ógissla flott plakat!

    #544

Leave a Reply