Listin breytir heiminum / listin viðheldur óbreyttu ástandi
Listafólki var ætlað stórt samfélagslegt hlutverk á 20. öldinni. Það tók virkan þátt í að halda á lofti ákveðnum lífsgildum, í mjög pólitískum heimi, og að skapa þjóðareiningu heima fyrir. Heilu heimsveldin telfdu fram listafólki til að sýna menningarlegan styrk sinn og þjóðirnar áttu sín þjóðskáld og tónskáld. Þetta kerfi hefur riðlast undanfarin ár og áratugi. Hnattvæðingin, og ekki síður nýfrjálshyggjan, hefur dregið úr mikilvægi þjóðríkjanna og heimsveldi hafa veikst. Að sama skapi hefur mikilvægi fjárfesta, fyrirtækja og banka stóraukist. Hvert er hlutverk listanna við þessa nýju skipan? Það virðist vera takmörkuð eftirspurn eftir þjóðskáldum. Íslenska útrásin var engu að síður iðulega tengd hugmyndaauðgi og krafti listafólks. Listafólki var ætlað mikilvægt hlutverk. Hvert verður hlutverk listanna við enduruppbyggingu samfélagsins?
Málþing á Kjarvalsstöðum í dag kl. 12 (afsakið hvað ég set þetta seint inn). Frekari upplýsingar hér.