William Blake

Það styttist stöðugt í nýtt tölublað af Tregawöttunum – þau eru sjö dögum of seint á ferðinni, eða fjórum mánuðum og sjö dögum of seint á ferðinni, en þá ber að horfa til þess að eitt tölublað frestaðist fyrst um tvo mánuði og féll svo loks niður. Það mun ekki gerast í þetta skiptið – og þessir fjórir mánuðir skrifast ekki á ritstjórann núna eða aðra sem unnu að nýja tölublaðinu.

.

Rage, fury, intense indignation,
In cataracts of fire, blood, and gall,
In whirlwinds of sulphurous smoke,
And enormous forms of energy,
In living creations appear’d,
In the flames of eternal fury.

Ég er að lesa William Blake. Og ævisögu Williams Blake eftir Peter Ackroyd. Hún er misgóð – eða misánægjuleg. Og helgast það fyrst og síðast af eðlilegum gloppum í ævisögu 18. aldar manns, þess sem einfaldlega er ekki vitað. Mér þykir hins vegar áhugavert hvernig Ackroyd speglar mikið af myndmáli Blakes í því sem var að eiga sér stað í kringum hann – í byltingarástandinu á Bretlandi á seinni hluta 18. aldar, þar sem eldar geisuðu gjarnan og ofbeldi og átök voru daglegt brauð. En fræg er sagan af því hvernig Blake sogaðist með í hringiðu Gordon-óeirðanna, þó sagan sé víst ekki alveg áreiðanleg (það er víst ekkert ólíklegt hann hafi einfaldlega farið með af fúsum og frjálsum vilja, en hann var heldur skreytinn í frásögnum af sjálfum sér). Hið biblíska myndmál Blakes er þannig ekki bara mystískt, ekki bara utanaðkomandi goðsögur, heldur líka lífið í kringum hann – og má einnig skoða í ljósi trúarskoðana hans, en hann er alinn upp utan bresku þjóðkirkjunnar, af svonefndum ‘dissenter’ foreldrum (sem þýðir ekki að þau hafi ekki verið trúuð, heldur að þau hafi verið ósammála þjóðkirkjunni í mörgum höfuðmálum) – og átökin, byltingarástandið, var auk þess biblískt í þeim skilningi að mikið var tekist á um trúarleg málefni. Dissenters vildu að breska þjóðkirkjan gerðist lúterskari – the dissenters were rather protestant, heitir það á ensku og finnst mér skemmtilegt. Þá ber að geta þess að þetta, og Swedenborgískur trúarhiti, var víst hæstmóðins meðal róttæklinga í þessa tíð.

Blake skipar síðan skilningi niður á ólík stig – allt frá eðlishvataskilningi til bókstafsskilnings (skilnings á veraldlegum málefnum) til spámannslegs skilnings, sem eiga í híerarkísku sambandi, þannig að ef þú ræður yfir hinu síðasttalda ræðurðu einnig yfir hinu fyrsta, en ekki öfugt. Nú finn ég ekki kaflann sem fjallaði um þetta – svo þið megið taka þessu með þeim fyrirvara að það er haft eftir lélegu minni mínu.

Þá er áhugavert – og aftur passar það vel inn í myndmál og hugsun Blakes – að þrátt fyrir að þetta hafi verið biblískir tímar og trúarlegir í mörgum skilningi, þá eru þetta líka tímar lauslætis og kynferðis. Fólk var sofandi hjá út um allar trissur, vændi var landlægt sem og erótík í listum, og sjálfur var Blake í seinni tíð hvatamaður fyrir makaskiptum – þó hann hefði raunar yfirgefið eina kærustu sína fyrir að liggja með öðrum mönnum. Stuttu eftir að þeim viðskiptum lauk hitti hann verðandi eiginkonu, Catherine Boucher, sína í fyrsta skipti – og hóf samskipti sín á því að kvarta undan því hve hin hefði verið ótrú. Catherine aumkaði sig yfir hann og hann spurði: „Vorkennirðu mér?“

„Já, það geri ég svo sannarlega!“

„Þá elska ég þig!“ svaraði Blake.

Einnig er sagt frá því að á vaxmyndasýningu í London, meðan Blake er ungur maður, hafi verið sýndur skúlptúr af reðri í fullri reisn. Og minnti mig á eitthvað miklu síðar.

Sumsé: eldur og brennisteinn, biblískur harmur, ofbeldi, kynlíf, ást, yndislegt sakleysi, óöryggi og óumræðilega heift – og þar hefur maður William Blake.

Hér syngur Allen Ginsberg ‘The Echoing Green’ eftir Blake úr The Songs of Innocence.

Þessi furðulega animasjón af William Blake sjálfum að lesa ‘London’ er svo stórfurðuleg.

Og meira svipað:

Hér er hægt að heyra fólk syngja Songs of Innocence (ekki hægt að setja það hér inn). Með fínni ljóðasöngvum sem ég þekki.

Þessi stuttmynd eftir Guilherme Marcondes er svo byggð á The Tyger eftir Blake.

Hér er hægt að skoða málverk Blakes.

Og hér er svo kínverji að lesa Blake, í Kína, á Youku, kínverska youtúbinu:

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!