Teemu Manninen

Að verða töframaður; eða, óður til Aleister Crowley, fjallamanns frá Bretlandseyjum

I

Bara þó einhver segi eitthvað um sem þið eruð ekki sammála gerir það hann ekki að hálfvita. Mögulega býr hann yfir reynslu sem þið búið ekki yfir og kannski er sýn hans af því taginu sem mjög er mikilvæg og giska oft er horft framhjá. Af þessum sökum er afskaplega erfitt að vera viss um hver sé og hver sé ekki skíthæll sem skortir raunverulegt innihald. Af þessum sökum brennum vér ekki brýr að baki okkur á leið vorri um framabraut töframannsins, þó hugsast megi að við komum þar fyrir litlum skiltum sem á stendur: „Hefur óljósa þýðingu.“

II

Að totta brjóst húsbónda vorra er kannski mikilvægt á ákveðnum stigum í þroska vorum, en þó er oss loks nauðsyn að brjótast úr hreiðrinu og reyna eigin vængi, oss er skylt að taka áhættur og verða sjálfir þró fyrir reynslu og visku. Hafi það enga aðra þýðingu, geta slík þrekvirki þó kannski kennt oss auðmýkt.

III

Til eru tilfinningasamar nálganir og hugvitsamar, þurrleg mál og andleg, slík sem byggja ekki á mikilli reynslu og slík sem byggja á engu öðru, slík sem kjósa töfra sína í hægindastólum, slík sem kjósa þá í Helvíti, í Himnaríki, í Geimnum, í Moldinni, sum í tengslum við samtök, sum við hefðir og sum lengst út á skrýtnaskeri í hverveithvarsýslu.

IV

4 6 3 8 A B K 2 4 A L G M O R 3 Y X 24 89 R P S T O V A L. Hvað merkir þetta, ó, spámaður? Ef þið vitið það eigi, KANNIÐ ÞÁ NÁNAR! Komist að því hvað bragðast vel. Koma englar og kanínur og ljós þér bara til? Hvað um Innrásir Geimvera úr Hryllilegustu Djúpum Himingeimsins? Undarleg orð og furðulegur útreikningur? Að synda einfaldlega í svölum tjörnum á haustin? Stundum er árangursríkasta leiðin til að ná markmiðum sínum ekki sú að sætta sig við það fyrsta sem dettur í fangið á manni. Gerið hluti. Prófið að gera hluti og umfram allt, LEYFIÐ YKKUR AÐ MISTAKAST HRAPALEGA. Mistök eru jafn mikilvæg og velgengni. Þetta tvennt er hvort sem er bara afurð þess að hugsa á röngunni. Sókrates sagði það ekki þess virði að lifa ókönnuðu lífi. Brunið á buxnarassinum. Takið áhættur. Gerið það bara, fjandakornið!

Teemu Manninen

Birtist fyrst í Tíu þúsund tregawöttum – ljótleika.

Tags:

Svaraðu kallinu!