Makkarónuskáld
Ég er að lesa til skiptis Everybody who was anybody – a biography of Gertrude Stein eftir Janet Hobhouse, Paradísarmissi Miltons og Íslenska bókmenntasögu I-V. Og nokkrar nýrri ljóðabækur raunar - Din vän datamaskinen eftir Pär Thörn, Går vidare i världen eftir Leif Holmstrand, En Famille eftir Robert Creeley og raunar hitt og þetta eftir Gertrude Stein líka í tveimur safnritum, með það fyrir augum að þýða. Maður verður dálítið ringlaður á köflum.
Íslenska bókmenntasögu eignaðist ég bara á dögunum. Er hálfnaður með fyrsta bindið, reyni að berja í mig visku um dróttkvæði og eddukvæði. Ég hef einu sinni ætlað að nota það sem uppsláttarrit. Það var í gær. Ég opnaði annað bindið og leitaði að Æra-Tobba.
En hann er ekki þarna. Sem er fram úr hófi lúðalegt. Upptalin ótal skáld frá 17. öld og sjálfsagt allir nema eftirlætið mitt yndislegast. Sem er auðvitað ekki ekki ekki ekki ekki ekki ekki þolandi, eins og skáldið kvað.
Um Æra-Tobba hefur lítið verið skrifað – það er til ein bók með formála eftir Jón frá Pálmholti – og annað þekki ég ekki, en myndi gjarnan þiggja ábendingar ef einhver veit af góðum skrifum um Þorbjörn. Sjálfur mun ég alveg á næstunni birta grein um Æra-Tobba í finnsku tímariti og á amerískri vefsíðu. Í því sambandi var mér bent á ítölsku makkarónuskáldin með Teofilo Folengo fremstan meðal jafningja.
Ég man ekki hvort ég var annars búinn að nefna það hérna – en Mál og menning keypti fyrir skemmstu réttinn á Eitri fyrir byrjendur (sem Nýhil gaf út) og er að selja hana í útlöndum. Nú þegar hefur einn bitið, þó enn eigi eftir að landa. Ég mun leggja Evrópusambandið að fótum mér.