Kurt Schwitters
Anna Blume
Ó þú, sem elskuð ert af mínum 27 skilningarvitum, ég elska þér!
Þú þína þig þér, ég þér, þú mér, – - – – Við?
Þetta á annars (í framhjáhlaupi) ekki að vera hér.
Hver ert þú, ótalda kvenpersóna? Þú ert, ert þú?
Fólkið sagði að þú værir.
Leyfum því segja, það veit ekkert hvað kirkjuklukkan slær.
Þú berð hattinn á fótum þér og gengur á höndum,
á höndunum gengur þú.
Halló, þín rauðu klæði, söguð í hvítar fellingar,
rauða elska ég Önnu Blume, rauða elska ég þér.
Þú þína þig þér, ég þér, þú mér – - – - Við?
Þetta á annars (í framhjáhlaupi) að vera í kaldri glóðinni.
Rauða Blume, rauða Anna Blume, hvað segir fólkið?
………………………Verðspurning:
……………………… 1.) …..Anna Blume á fugl.
……………………….2.) …..Anna Blume er rauð.
……………………… 3.) …..Hvernig er fuglinn á litinn?
Blár er litur þíns gula hárs.
Rautt er kurrið í þínum græna fugli.
Þú látlausa stúlka í hversdagsklæðum,
þú elskulega græna dýr, ég elska þér!
Þú þína þig þér, ég þér, þú mér – - – - við!
Þetta á annars (í framhjáhlaupi) að vera í – - – glóðkistunni.
Anna Blume! Anna, A – - – - N – - – - N – - – - A!
Ég slefa nafni þínu.
Nafn þitt drýpur eins og mýksta nautgripatólg.
Veistu það, Anna, veistu það nú þegar?
Maður getur einnig lesið þig aftanfrá.
Og þú, yndislegust allra,
þú ert eins að framan og að aftan:
A – - – - N – - – - N – - – - A.
Tólgin rennur GÆLANDI yfir bak mér.
Anna Blume,
slefdýrið þitt,
ég – - – - elska – - – - þér!
Kurt Schwitters