Fjölmiðlar og þýðingar // Barnabók og reyfari

Ég heyrði ekki betur í síðustu Kilju en að eitthvert þeirra Egils, Páls eða Kolbrúnar hefði sagt nýja reyfarann eftir Jo Nesbø vera fyrstu bókina eftir hann á íslensku. Þetta er ekki satt. Þetta er fyrsta bókin í reyfaraseríunni – en Doktor Proktor og prumpuduftið (sem ég þýddi) er eftir sama mann. Eftir tíu ára glæpasagnaferil skrifaði Jo Nesbø sína fyrstu barnabók, sem var alger sökksess, og það best ég veit ein vinsælasta barnabók í Noregi í seinni tíð.

Í gærmorgun vaknaði ég og ætlaði að kanna hverjir hefðu verið tilnefndir til þýðingaverðlaunanna. Ég rúntaði alla vefmiðlana en fann ekki neitt. Loks mundi ég að svona hafði þetta líka verið í fyrra: Tilkynnt með pompi og pragt í Kiljunni – en hunsað af öðrum fjölmiðlum. Ég tékkaði aftur rétt í þessu – nú er tilkynning um Hjörleif og Árna inni á Forlagssíðunni, tilkynning um Guðrúnu á Bjartssíðunni, og tilkynning um Sölva á Tregawöttunum (sem ég setti sjálfur inn). Þá er tilkynning á thot.is. Loks er hægt að lesa frétt um málið ef maður hefur aðgang að netmogganum – en á mbl.is er ekki stafkrókur, og ekki á Vísi, né DV. Ekki á Smugunni, Pressunni, Eyjunni, Herðubreið eða Nei. Stærstu vefmiðlarnir – og í raun allir sem geta með réttu gegnt því nafni – hunsa tilnefninguna.

Þetta segir líklega meira um fjölmiðla en þýðingar eða bókmenntir. Að nýloknum stærstu bóksalajólum síðari tíma  – og um söluna hefur verið fjallað fram og aftur – er ekkert fjallað um stærstu (og einu) þýðingaverðlaun á Íslandi. Nema Egill, auðvitað. Og ég trúi varla öðru en það hafi verið eitthvað í Víðsjá (sem ég heyri ekki eftir að hlaðvarpið hætti að virka). Sjálfsagt mætti bæta upp vanrækslu fjölmiðla með því að troða upp á þá fréttatilkynningu (í ofanálag við tilnefningatilkynningu í sjónvarpi allra landsmanna sem blaðamenn hafa sjálfsagt engan tíma til að fylgjast með (einhver þarf jú að þýða fréttir um afmyndaða fótleggi poppstjarna)). Mig grunar að það vanti í ferla dómnefndar að hún sendi út fréttatilkynningu. En það er ekki hægt að ætlast til þess að fólk, sem ekki hefur af því reynslu, viti það fyrirfram að íslenskir blaðamenn eru meira og minna vanhæfir og íslenskir fjölmiðlar hanga í einu lagi á óreiðunni einni saman.

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!