Bókmenntabarinn Stanza í Malmö

Ég fór til Malmö undir lok marsmánaðar til að lesa upp á Bókmenntabarnum Stanza (sem er atburðabar sem gerist 8 sinnum á ári). Húllumhæið fór fram á Inkonst listhúsinu og meðal annarra þátttakenda var margmálaskáldið Cia Rinne, hinn mikli nestor sænska konkretismans, Bengt Emil Johnson, hans frú, performistinn Kerstin Ståhl og ljóðagrúppan 3 advokater, með Pär Thörn, Peder Alexis Olsson, Ola Stahl, og Calle Lindh. Ég las úr einræðisherraseríunni, kreppusonnettuna og tvö mállýskuljóð (dönsku og skánsku).

Smellið hér til að sjá.

Tags: , , , , , , , ,

Svaraðu kallinu!