Ég kláraði þriðju skáldsöguna mína í gær – í bili að minnsta kosti. Hana vantar ennþá nafn – titillinn sem ég var með, Rasmus Klumpur & pólitíski ofstopinn, er nú heiti fyrri hlutans. Seinni hlutinn heitir Millý Mollý Mandý & dýrðarinnar mýkt. Ég las hana yfir í vikunni og sendi á ritstjóra í gær.... »
Archive for April, 2009
Að trúa á Evrópu (útumallt hundingjar)
Evrópa er trúarbrögð. Og umræðan um hana er að verða að einhvers konar guðspjalli – spírallast um hártoganir, gífuryrði og uppljómanir. Haukur Már tengir hana við allt sem honum þykir fagurt – frá Megasi til frönsku byltingarinnar til hummus til kommúnisma. Teitur Atlason, sem oft rekur einhvers konar samfélagskrítík á bloggi sínu, rekur orð... »
Makkarónuskáld
Ég er að lesa til skiptis Everybody who was anybody – a biography of Gertrude Stein eftir Janet Hobhouse, Paradísarmissi Miltons og Íslenska bókmenntasögu I-V. Og nokkrar nýrri ljóðabækur raunar - Din vän datamaskinen eftir Pär Thörn, Går vidare i världen eftir Leif Holmstrand, En Famille eftir Robert Creeley og raunar hitt og þetta... »
Eitt stykki vinstri stjórn
Það er að mörgu leyti skiljanlegt að einhverjir vilji refsa flokknum og flokkurinn þarf auðvitað að taka því. Það er ekki nóg að vera í ríkisstjórn, það þarf líka að sýna forystu. En látum það nægja í bili. Svona er málum háttað: Ungt fólk hefur ekki þurft að hafa miklar áhyggjur í lífinu. Það mun breytast með vinstri stjórn …………………………………(en kannski verður það …………………………………góður skóli... »
Hin djúpa finnska kreppa (og ESB)
Fyrir rétt ríflega einu ári síðan sat ég inni í stofu og las mbl.is. Þar var sagt frá ótrúlegu fannfergi í Helsinki. Að sögn talsmanns lögreglunnar í Helsinki, Jussi Pohjonen, ríkir algjör ringulreið í höfuðborginni. En gríðarlegt fannfergi er í borginni sem og annars staðar í Finnlandi. Kom veðrið ýmsum í opna skjöldu enda hefur... »
Hræðsluáróður
Ef við göngum ekki í Evrópusambandið og tökum upp evru mun allt fara til fjandans og íslenskur efnahagur aldrei taka við sér. Það má ekki bíða. En ef við göngum í Evrópusambandið erum við að fremja landráð. Endurtaka Gamla sáttmála. Og ef við sækjum ekki um aðild erum við að forðast samræður. Eins og... »
Ideósynkratísk nálgun á smámuni í stuttu broti í kafla í gamalli bók
- um upphafsorð ‘Mauvais sang’ úr ‘Une saison en enfer’ eftir Arthur Rimbaud í sex þýðingum I Þegar til stendur að meta hvort þýðingarverk hafi „tekist“ eru mælikvarðarnir oftar en ekki dálítið abstrakt og óljósir: Flæðir textinn, nær hann anda upprunalegu útgáfunnar, er þetta jafn góð póesía á upprunamáli og markmáli? Þegar skilningur manns á... »
Líf mitt – tilraun til sjálfsævisögu
Hin bandarísku sprokskáld (e. language poets) eru alræmd fyrir „erfiða“ texta – hliðskipaða og langa bálka, þunga aflestrar og fulla af textatætlum sem ekki er alltaf svo auðvelt að „setja saman aftur“ – þar sem ljóðmælandi er afbyggður, óljóst er hver mælir og hvað hann talar um frá einni setningu til þeirrar næstu. Samhengislaust... »
Blátt áfram rautt: gamalt, gleymt & gott
Konkretljóðabókin Blátt áfram rautt frá árinu 1981, eftir Ásgeir Lárusson myndlistarmann er eitthvert yndislegasta dæmi íslenskrar myndljóðlistar sem ég þekki. Bókin er samsetningur úr tungumálabrotum sem fengin eru héðan og þaðan – úr handbókum, dagblöðum, kennslubókum, glansritum, auglýsingum o.s.frv. – sem klippt eru saman til að skapa situationísk áhrif þar sem ólík en skyld... »
