Tallinn, Akureyri, Helsinki, Malmö …

Á fimmtudag les ég upp í Malmö, ásamt finnlandssænska ljóðskáldinu Cia Rinne og nestori hins sænska konkretisma, Bengt-Emil Johnson – auk ljóðagrúppunnar 3 Advokater. Malmö Litteraturbar Stanza – Inkonst.com 26.03.2009 – kl. 20.00
Í anda og mynd verð ég á Akureyri á Populus Tremula þann 3. apríl, og flyt ljóð – þó líkaminn verði annars staðar – á ljóðahátíð litlu Ljóðahámerarinnar – ásamt Ingunni Snædal, Jóni Laxdal og Þórarni Eldjárn.
Næst er það Poikki-taiteellinen kirjallisuustapahtuma eða þverlistrænn bókmenntaviðburður á Korjaamo í Helsinki 04.04.2009, kl. 19.00. Meðal þátttakenda eru Kati Neuvonen og Jani Sipila.
Áfram er það Helsinki – framúrstefnukvöld í ensku bókabúðinni Arkadia-bookshop – 07.05.2009, ásamt Mathias Rosenlund, Pauliina Haasjoki, Mikael Brygger og Hannele Mikaela Tavaissalo o.fl.
Og svo enn meiri Helsinki, tveimur dögum síðar – bókmennta og listaklíkan Uusälyttömyysl blæs til gjörningaveðurs þann 09.05.2009 kl. 19.00 – auk annarra þátttakenda, Jukka Laajarinne.
Um miðjan maí er það svo norræna bókmenntahátíðin í Tallinn The Nordic Poetry Festival Tallinn – 12-16.05.2009.
Að öllum líkindum verður svo enn einn maí-upplesturinn í Vanha Ylioppilastalo þann 20. maí.
Ljóðaþýðingahluti heimasíðunnar minnar er nú orðinn ansi stór og má finna þar á annað hundrað verk.
Eitthvað hefur svo bæst í seríuna 25 íslensk skáld – þýðingar mínar á íslenskum skáldum á ensku.