Oscar Rossi
4 ljóð úr Bréf til lögreglunnar
Kæri herra lögreglumeistari
Ég sný mér til yðar þar sem undirsátar yðar hafa í mínum skilningi ítrekað farið illa með mig. Ég vísa til runu atburða sem að mínu mati voru í hæsta máta undarlegir og óskemmtilegir og mun ég reyna að segja frá þeim svo nákvæmlega og hlutlaust sem mér er frekast unnt svo að réttlætinu megi verða fullnægt.
[...]
Þetta byrjaði allt saman fyrir nokkru síðan þegar ég gekk inn á aðalskrifstofu lögreglunnar með það að augnamiði að gefa mig fram við lögregluyfirvöld, þ.e.a.s yður. Nánar tiltekið var þetta fimmtudaginn þann 9. Ég verð að viðurkenna að þetta gekk ekki alveg eins og ég hafði ætlað, yður að segja, þar eð ég mætti örlítið of seint.
.
.
.
atvinnuviðtal
………………………………….skemmtilegt að vera
loksins tekinn alvarlega!
………………………………………………. mér skilst þetta
samtal sé tekið upp
…………………….. en hvað er með þennan lampa
Ég skil. Það er auðvitað margt sem ég á eftir að læra áður en við getum virkilega byrjað af alvöru. Engar áhyggjur! Ég get beðið míns tíma. sem er beint í andlit mér?
.
.
.
ég kem nú til með að laga þetta,
……..……..……..……..ég læt mig
……..……..……..……..……..ekki undir þrýstingi
……..……..……..engin prófraun er of erfið. fyrir þetta hef ég
……..……..æft mig lengi
……..……..……..……..……..sá sem sýður sig harðar
……..……..……..brestur.
……..……..……..……..……..ég skal
standa mína pligt
.
.
.
kæri herra lögreglumeistari!
þegar ég var barn stóð mamma einu sinni með mig hátt yfir höfði sér æpandi á útbreiddar hendur og hún vaknaði rétt áður en hún heyrði skallann á mér skella í steingólfið.
Oscar Rossi
.
.
.