Menningarverðlaun DV
Ég spái því að Konur Steinars Braga fái Menningarverðlaun DV í dag. Það var út af fyrir sig stórfurðulegt að hún skyldi ekki tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og skýrasta sönnunin um að þar ráði klíkuskapur – kannski ekki öllu, en samt ansi mörgu. Nýhil er einfaldlega of lítill fiskur í tjörn Félags íslenska bókaútgefenda. En því er ekki heldur að neita að Nýhil er ekki í aðstöðu til að eyða fjármunum í kynningu, né heldur til að vera með plöggara í fullri vinnu í bókaflóðsins brútalíteti.
Konur er hins vegar ekki besta bók Steinars Braga, fyrir mína parta – að svo miklu leyti sem ég raða bókum upp í hírarkíu eru Hið stórfenglega leyndarmál heimsins og Áhyggjudúkkur ofar á lista. Sem segir auðvitað fyrst og síðast til um hversu magnaður höfundur Steinar er. Þeir sem kynnast verkum hans fyrst í Konum geta dundað sér í fyrri verkum hans í nokkuð langan tíma án þess að leiðast. En hún birtist á réttum tíma og undirbygging Bjarts fyrir útgáfu – sem aldrei varð af þar á bæ – var vel heppnuð. Það var hæp fyrir bókinni sem Nýhil hefði aldrei getað staðið fyrir. Og hún var relevant þegar hún birtist, fyrir sakir umfjöllunarefnis síns.
Ég á enn ólesna þýðingu Sölva Björns á Rimbaud – hún er í póstinum og ég bíð spenntur. Rán á ég ekki og hef ekki lesið. Sjáðu fegurð þína eftir Kristínu Ómars er yndisleg bók – Apakónginn á ég en er ekki nema búinn að rétt glugga í hana og líst raunar vel á.
Ertu viss um það Eiríkur að Konur Steinars Braga hafði verið lögð fram til tilnefningar? Ef ég man rétt kom bókin mjög seint út fyrir síðustu jól og þær bækur sem koma til álita þurfa að berast valnefndinni tímanlega…
Ekki gleyma því að forvalsnefndin er að störfum í nóvember, en þá er nú lítið kynningarstarf farið í gang og því ekki augljóst í hverju aflsmunur stóru forlaganna á að liggja. Ef auglýsingaskrumið hefur áhrif, þá myndi maður frekar halda að það birtist í úrslitunum þegar valið er á milli tilnefndu verkanna.
Jú, hún var lögð fram – það var m.a.s. minnir mig rætt í hópnum hvort það væri þess virði, í ljósi samsæriskenninga um ægivald stóru forlaganna yfir verðlaununum – og ég er viss um að niðurstaðan var að leggja hana fram. Og það var skúff innan Nýhils þegar hún var ekki tilnefnd.
Hins vegar er það rétt með auglýsingaskrumið, og styrkir kannski enn frekar stoðir samsæriskenninga um vald stóru forlaganna.