Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 9
Svo ég linni ekki látum – skrifa íslensk ljóðskáld lítið sem ekkert um ljóðlist. Hugsi þau um hana yfir höfuð þá kjósa þau að halda því fyrir sjálf sig og deila því með engum – sem orsakar menntleysi, að sjálfsögðu, og samræðulaust samfélag er ævinlega dauft í anda.
Sem fær mig til að halda að öllum sé sama um íslenska ljóðlist.