Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 8

(Svo ég haldi áfram að rifja upp gamlar umkvartanir) þá er ægilega slappt til þess að vita að stærstur fjöldi íslenskra ljóðskálda hefur engan áhuga á að mæta á upplestra nema þau séu sjálf að lesa.

Í íslenskri ljóðlist eru engar víglínur skráðar í jörðina – en auk þess er engin tilfinning fyrir samfélagi. Hvorki bræðralag, systralag né átök.

Sem fær mig til að halda að öllum sé sama um íslenska ljóðlist.

Tags: ,

Svaraðu kallinu!